Ulin 29 ekki trú á hinu, sem heyrst hefur, að íslendingar þyrftu að gera sjer far um að glata þjóðerninu, svo þeir gætu samlagast sem vera ber amerísku þjóðfjelagi. En það er engin hætta, þetta mundu þeir ekki geta, því liklega hafa þeir góðu menn rjett fyrir sjer, er segja, að þjóð- erni yfirleitt 'sje ódrepandi jafnvel þó það taki inn eitur. Pað er helg skylda allrar þjóðarinnar hjer heima, að hjálpa. þjóðarbrotinu vestra að halda við sig ísienskunni. Það er heldur ekki svo lítið brot, samanborið við heima- fólkið, ef það eru milli 30 og 40 þúsundir. En þetta tekst ekki, svo í lagi sje, nema með góðri skólakenslu í íslenskum bókmentum að fornu og nýju og sögu íslands. Þarna eiga austur-íslendinganað rjetta hönd, þó það kosti eitthvað. Eiga líka löndum vestra margt gott upp að unna. Pyrftu einnig að borga fyrir gamlar syndir, t. d. þá grátlegu og grimmilegu björg- unartilraun, þegar hreppsnefndir hjer á fyrstu vesturflutn- ingsárum sendu f'rá sjer fátækar fjölskyldur án minstu hjálpartækja, er þangað kom. Ekki þeim að þakka að úr rættist, og ótaldar eru hörmungarnar, sem þetta fólk varð að þola á frumbýlingsárunum. Einn aðaltilgangur íslendingafjelagsins í N. Y., er að leiðbeina ókunnugum íslendingum, nýkomnumiað heim- an. Utanáskrift fjelagsins er: Mr. O. G. Oodmundson Battin High School, Elizabeth, N. Y., en jeg skal leyfa mjer að vísa til hr. kennara Steingríms Arasonar, Grund- arstíg 3, Reykjavík, sem mundi fúslega gefa upplýsingar, einnig gagnvart augnspítalanum og þær betri en jeg hef getað gefið. Nafn og utanáskrift spítalans er: Manhattan Eye, Ear & Throat Hospital, 210/East 64th Street, New York, U. S. A. 15. aept. 1921. Ingibjörg R. Jóhannesdótir, Ámesi við Akureyri.