46 Hlín nýjar og andríkari hugvekjur og húslestrabækur, sem fólkið vill hlusta á og sem auðgi anda þess og bæti hugsunarháttinn. Þetta kemur áreiðanlega »ef guð vill« segja sumir, en rjettara mun vera af þvi guð vill. Aðeins verðum við að hafa dálitla þolinmæði, því guð er lengur að skapa en margur hyggur. En við getum áreiðanlega flýtt fyrir honum með iðjusemi, reglusemi og ngjusemi. Steingrímur Matthiasson. Ástir. Erirtdi flutt á kvennanámsskeiði að Hvítárbakka, 1921. Jeg hef nefnt þetta erindi ástir, og bendir það til efn- isins. Ungu meyjarnar hugsa máske: Hvað ætli gömul kona geti sagt um ástir, sem við vitum ekki? Jæja, allar höfum við börnin verið, og gamla fólkið er þó búið að sjá fyrir endann á öllum sínum æfintýrum og veit, að nú er óhætt að byrja að segja frá, það muni ekki bæt- ast við efnið. Pið þekkið líklega söguna af Ahmed kóngs- syni algjörva, pílagrími ástarinnar, en jeg ætla þó að rifja hana dálítið upp. Stjörnuspekingar spáðu því við fæðingu hans, að hann mundi verða ásthneigður mjög, og rata þessvegna í miklar raunir. Karl faðir hans brá við skjótt og hugðist geta ráðið nokkru um forlög sonar síns. Ljet hann reisa höll eina fagra á klettasnös; Þar átti prinsin litli að alast upp í einveru, með gömlum, uppþornuðum arabiskum