Hltn 41 eiiis og sú, er þær hafa fengið hjer, því auk þess að vera gagnlegur og mentandi skóli fyrir stúlkurnar, vinna þær þau störf fyrir heimilin, sem þau geta ekki án verið, en víðast hvar ekki hægt að leysa af hendi heima. Nú á tímum er alment mikið talað um fólksekluna í sveitunum og fólksstrauminn til sjávarþorpa og kaup- staða, en myndu þá ekki námskeið eða sveitaskólar fyrir unglingana, bæði konur og karla, vera besta og örugg- asta læknisráðið við því? Petta er spurning, sem allur almenningur ætti að ihuga og reyna að leysa úr, og þá er það ekki síður verkefni fyrir þing vort og landsstjórn til úrlausnar. H. Ó. Heimilisiðnaðarnámskeið var haldið í skólahúsinu á Laugum í Reykjadal frá l. febr. til marsloka að tilhlutun undirritaðra. Kent var vefnaður, saumur og smíði. Kendi Helga Kristjánsdóttir vefnaðinn og hafði yfirstjórn námskeiðsins, Kristjana Kristjánsdóttir á Orænavatni kendi sauma og Valdimar Jósafatsson trjesmiður á Húsavík smíði. Nemendur voru 4 i vefnaði, 8 i saumum og 16 i smiði, en einn þeirra veiktist í byrjun námskeiðsins. Nokkrir sóttu um nám- skeiðið, einkum, vefnað og smiði, sem kennararnir treyst- ust ekki til að taka vegna anna. Allir voru nemendur vel komnir til þroska, flestir yfir tvítugt. Petta var unnið á námskeiðinu: /. Vefnaður. Skrifuð vefnaðarfræði, kent að reikna út garn i vefi Og setja þá upp. Settir voru upp 8 vefir og ofið: 5 handklæði með hringavefnaði, 5 baðhandklæði, 4 litlir borðdúkar með hálfdregilsgerð, 4 kommóðudreglar og 1 lítill dúkur með þelamerkurvefnaði, 1 bakkadúkur, 4 bekkklæði með rósabragði, 1 á 3ja ál. bekk, hirr minni,