Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 65
Hlln
63
gagn um leið. Fyrri part dagsins var sljettað tún af kappi,
og var ánægjulegt að sjá þann glaðværa hóp nota kraft-
ana og gera likamsæfingar á þennan hátt. (Eina tunnu af
Noregssalpjetri gaf fjelagið mjer líka, til að bera á túnið).
Seinnipart dagsins var dansað og leikið sjer. Nú hefir
verið boðaður fundur hjer næsta sunnudag í sama
augnamiði.
Atvinna mín er, eins og áður er getið, mest smíðar, á
seinni árum aðallega heima, og þá helst spunavjelar, og
hefi jeg nú þá átjándu í smíðum. — Ljósmyndir hefi jeg
í hjáverkurri til gagns og gamans. Lítið tek jeg af manna-
myndum, en allmikið safn á jeg nú af útsýnis- og tæki-
færismyndum frá ýmsum stöðum hjer á landi. Hefi búið
til og selt talsvert af rúmsjármyndum (Stereoskop) og
svo skuggamyndum og vjelar til að sýna þær með. Ljós-
tæki fyrir carbid hefi jeg verið að búa til og smá-laga í
15 ár. Jeg hefi haft talsverðan hagnað af að ferðast með
þessar myndir og sýna þær, einkanlega næstliðinn vetur.
Var mjer allstaðar vel tekið.
Bárður Sigurðsson.
Höfða við Mývatn.
Berin.
Þótt berjavöxtur sje talsverður í flestum sveitum lands-
ins, þá er berjasöfnun oft heldur lítil, svo mikið af berj-
unum visnar á lynginu, og kemur það til af því, að ber-
in eru oftast ekki þroskuð nema stuttann tíma, sem ein
mitt er mesti annatími sveitafólksins, svo börn og lið-
ljettingar, sem gætu unnið að berjasöfnun, eru þá notuð
til annara starfa. Nú þegar oss hefir verið kent, að berin
sjeu mjög bætiefnarík, ætti að hugsa meira um, að börn