Hlín Margt eg gagnlegt las og lærði Á Ieið sem fylgir mér. Fyrir löngu liðnum árum Lífið valdi mér Annað »heima«, í öðru Iandi, Ó, svo langt frá þér. Hugur vængjafrár úr fjarlægð Flýgur oft til þín, Kyrlát þrá og klökk þín saknar, Kæra sveitin mín. Fagra bygð, sem framar aldrei Fæ eg sjónum leitt, Þjer er helguð tállaus trygð, Sem tíminn fær ei breytt. Þótt eg frá þér fjarlæg uni, Fósturjörðin kær, Hugur minn og hjarta ætíð Hjá þér dvalið fær. María ö. Árnason. Minneota, Minn. U. S. A.