Hlln 7 Fríða Sigurbjörnsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir. Kvenfjelagið »Auður«, Miðfirði: Salóme Jóhannesdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir. »Kvenf jelag Staðarhrepps«: Gróa Oddsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir. Heimilisiðnaðarfjelag Engihlíðarhrepps: Guðríður S. Líndal. Hið skagfirska kvenfjelag: Sigurlaug Knudsen. Kvenfjelagið »Von«, Siglufirði: Sigurbjörg Gunnarsdóttir. Hjúkrunarfjelagið »Hlíf«, Akureyri: Guðrún Angantýrsdóttir. Gáfu fulltrúarnir skýrslur um starfsemi fjelaga sinna. Skýrsla send frá kvenf jelaginu »Freyja« í Arnarnes- hreppi. Úrsögn kom frá »Kvenfjelagi Svalbarðsstrandar«. Endurskoðendur reikninga voru kosnar: Guðrún Angantýrsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir. Heimilisiðnaðarmál: Guðríður S. Líndal Holtastöð- um, flutti erindi, sem Jóhanna A. Hemmert, Blönduósi sendi fundinum um þetta mál. Var það uppástunga hennar, að bændur slægju sjer saman og ljetu tæta ull sína í stórum stíl, svo vinnulaun yrðu ódýrari. Hall- dóra Bjarnadóttir talaði um nayðsyn þess, að koma handavinnu inn í barnaskólana. Hvað ullarvinnuna snerti áleit hún heppilegast að byrja á því að fram- leiða aðeins eina tegund, t. d. sokka, og reyna að gera þá þannig úr garði, að landsmenn fengjust til að nota þá, ekki síður en þá útlendu. Hafði hún meðferðis sýn- ishorn af sokkum, sem voru að útliti og gerð þannig, að þeir mundu vel seljanlegir. Guðrún Pjetursdóttir gat þess, að Bogi Þórðarson,