Hlín i 9 fyrirkomulag á byggingu sveitabæja og tóku margar fundarkonur til máls og sýndu mikinn áhuga. Tillaga kom fram frá Jónínu Líndal: »S. N. K. skorar á Útvarpsráð íslands, að útvarpa einu sinni á viku erindum, er snerta húsmæðrafræðslui sjerstaklega innanhúsströrf og barnauppeldi, og leýfir sjer að benda á, að útvarpsstjórnin sje, að því er þetta snertir, í samráði við Kvenfjelagasamband íslands«. Var húnsamþykt í einu hljóði. Tillaga frá Sigurlaugu Knudsen: »Fundurinn lýsir óánægju yfir gerð þeirra bygg- inga, sem reistar hafa verið með láni úr Byggingar- og landnámssjóði, og óskar alvarlega að ríkisstjórnin hlutist til um, að fyrirkomulaginu verði breytt i hag- kvæmari átt, t. d. að húsin verði ekki hærri en svo, að eldhús og íbúð sje á sömu hæð«. Tillagan samþykt. Svohljóðandi tillaga samþykt frá Halldóru Bjarna- dóttur: »Fundur S. N. K. skorar á skólanefnd Kvennaskól- ans á Blönduósi að taka þegar á þessu ári upp þann sið, að halda 67 daga námsskéið í skólanum fyrir 6 hjeraðskonur árlega«. Hjúkrunarmál: Sigurlaug Knudsen, Sauðárkróki. Brýndi hún fyrir konum þá nauðsyn, að hafa hjúkr- unarkonur í sveitunum, og skoráði á þær að gefast ekki upp við það. Nefnd sú, er kosin var í tóskaparmálinu, kom fram með álit sitt: »Tóskaparnefnd sambandsfundarins ákveður og leggur til að send sjeu til reynslu í tóvjelar 150 kg. af góðri, toglítilli, hvítri 1. flokks ull, láta gera úr henni hentugt sokkaband, tvöfalt og einfalt, lita það, láta prjóna og ganga vel frá því. útboð verður gert um alla þessa vinnu. Ullin gerir nefndin ráð fyrir að fáist að