10 fflln láni frá nokkrum heimilum í Austur- og Vestur-Húna- vatnssýslu«. Ennfremur leggur nefndin til: »Að S. N. K. láni 500 kr. til styrktar þessari starf- semi«. Var það samþykt af öllum mættum fulltrúum. Til framkvæmda í þessu máli voru kosnar í nefnd: Guðríður S. Líndal, Salóme Jóhannesdóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Guðbjörg ólafsdóttir, Elísabet Guð- mundsdóttir. . Svohljóðandi tillaga frá Halldóru Bjarnadóttur bor- in upp og samþykt: »Fundur S.. N. K. skorar á Búnaðarf jelag Islands að hlutast til um að konur landsins njóti styrks úr Verk- færákaupasjóði ríkisins til innanhúss verkfærakaupa, á sama hátt og karlmenn fá til kaupa á landbúnaðar- verkfærum, og er þar sjerstaklega átt við prjóna- og saumavjelar, vefstóla og spunavjelar. Garðrækt: Gróa Oddsdóttir, Þóroddsstöðum, Hrúta- firði. Hún beindi máli sínu aðallega tii húnverskra kvenna, kvað garðrækt fremur lítið á veg komna hjá þeim, en vildi að konur tækju nú höndum saman og reyndu að prýða eitthvað kringum hið veglega skólahús, sem nú væri nýreist hjá þeim. En engar tillögur komu fram. Kveðja kom frá kvenfjelaginu »Snót« í Kaldrana- neshreppi og ósk um að S. N. K. gæti sent því garð- yrkjukonu næsta vor. Samþykt að senda svohljóðandi skeyti: > . y>EHn Briem Jónsson, Bókhlöðustíg 7, Reykjavík. Húnverskar konur á fundi S. N. K. í Reykjaskóla, senda þjer hjartans þökk fyrir alt, sem þú hefir gert í þarfir norðlenskra kvenna. Alúðarkveðja. Fun&wrwm.