Hlín 11 Þegar hjer var komið, tóku konur sjer hvíld frá fundarstörfum og hlustuðu á erindi, sem Sigurlaug Knudsen hjelt þeim til fróðleiks og skemtunar og nefndi: »Fyr og nú«. Að því loknu ávarpaði Guðfinna Stefánsdóttir frá Dalgeirsstöðum fundarkonur nokkrum þakkar- og kveðjuorðum. Síðan kvaddi formaður fundinn til að standa upp í virðingarskyni við heiðursfjelaga og stofnanda S. N. K., Halldóru Bjarnadóttur. Kosinn ritari í stað Laufeyjar Pálsdóttur, sem gekk úr stjórn, Guðrún Angantýrsdóttir, Akureyri. Vararit- ari: Gunnlaug Kristjánsdóttir, Akureyri. Samþykt að næsti sambandsfundur verði haldinn í Norður-Þingeyjarsýslu, ef konur þar treysta sjer til að hafa hann hjá sjer. Þessi tillaga kom fram: »Fundurinn leggur til að f elt verði úr 5. gr. laganna ákvæðið um að formaður S. N. K. skuli jafnan búsett- ur á Akureyri.« Á næsta Landsþing kvenha voru kosnir þessir full- trúar: Fyrir Þingeyjarsýslur: Helga Kristjánsdóttir, Hjalla, og til vara: Vjedís Jónsdóttir, Litluströnd. , Fyrir Eyjafjarðarsýslu: Jóninna Sigurðardóttir, Akureyri, og til vara Laufey Pálsdóttir, Akureyri. Fyrir Skagaf jarðarsýslu: Sigurlaug Knudsen, Sauðárkróki, og til vara: Hans- ína Bendiktsdóttir, Sauðárkróki. Fyrir Húnavatnssýslur og Strandasýslu: Jónína Líndal, Lækjamóti, og til vara: Jakobína Jakobsdóttir, Hólmavík. Halldóra Bjarnadóttir lagði til að hjer eftir skyldi stjórn Sambandsins launuð, þannig að form. hefði kr.