12 Hlín 200.00, gjaldkeri og ritari kr. 50.00 hvor á ári, og var það samþykt. 53 konur sátu fund þennan dag. Fundargerðin lesin upp og samþykt. Fundi slitið. Ingibjörg Eiriksdóttir, fundarstjóri. Límfey Pálsdóttir, Ghiðriður S. Líndal, fundarritarar. Þessi sambandsfundur norðlenskra kvenna var hald- inn á vegum »Kvennabandsins«, sem er samband Kven- fjelaga í Vestur-Húnavatnssýslu, en aðalumsjón og frammistöðu höfðu konur í Kvenf jelagi Staðarhrepps, og gerðu það með þeirri snild og prýði, að fundarkonur munu þess lengi minnast með þakklæti. Að kveldi hins fyrra fundardags flutti Helgi Valtýs- son, kennari, fyrirlestur og skemti einnig fundarkon- um með kvæðaupplestri. Síðari daginn horfðu konur á sundleikni barna og kl. 9 að kveldi settust allir að kaffisamdrykkju og skemtu sjer við ræðuhöld, söng og hljóðfæraslátt langt fram á nótt. Að fundinum loknum fóru nokkrar fundarkonur út á Blönduós að heimsækja Kvennaskólann og skoða handavinnusýninguna, sem þá stóð yfir.