HUn Í5 nær einskisvirði, og ekki einu sinni markaður nema fyrir nokkurn hluta þeirra. En vörur þær sem kaupa þarf aftur á móti lítið lækkað í verði. Hefur fjelagið gert sitt ýtrasta til að jafna þennan mun, og fengið stjórnina í lið með sjer til þess að varna skuldheimtu- mönnum að vera of nærgöngulir allslausum almúgan- um, þangað til einhver allsherjar jöfnuður kemst á. Fjelagið hefur stuðlað að stofnun allra hinna sam- einuðu fjelaga, sem nú versla að miklu leyti með af- urðir bændanna, og hefur þessvegna í raun og veru tapað á því, sem fjelagsskapur, þar sem úr hópi f je- lagsins komu mennirnir, sem settir eru í ráðaneyti allra þessara stofnana. Það eru yfir 200 deildir í fjelaginu til og frá" um fýlkið. Skrifari okkar, mrs. Anna Gray, sem hefur skrifstofu í Winnipeg, tengir deildirnar saman með því að hún skýrir þeim frá öllu, sem gerist víðsvegar á f jelagssvæðinu. þannig myndast keðja, er tekur yfir alt fylkið, hlekkirnir styðja að því, hver á sína vísu, að sameiginlegt mark náist. Saméinaða bændafjelagið hefur einn allsherjar fund á hverjum vetri, mætast þar allir starfsmenn og kon- ur fjelagsins: Forsetar, varaforsetar, skrifari og full- trúar frá öllum deildum, sem efni hafa á að senda þá. Gefa þá fastanefndir skýrslur yfir störf sín yfir árið. Jeg hef haft það hlutverk síðustu tvo vetur að skýra frá »Friðarhorfum í heiminum«. Skýrslur eru einnig gefnar um þau mál, sem hjer greinir: »Heilsufar«, »Mentun«, »Afurðasala bænda«, »Innflutningur fólks til Canada«, »Náttúruauðæfi« o. s. frv. Einnig eru rædd ýms vandamál bænda og til- lögur lagðar fyrir þingið iog1 afgreiddar eftir bestu vitund og svo sendar stjórn landsins. Það er reynt að hafa góða skemtun í sambandi við fundinn. Ágætir ræðumenn eru fengnir og söngur og