Hlín 17 sjer í verksmiðju sinni, og hefur salan æfinlega hepn- ast vel. Þá höfum við stofnað saumadeild í barnaskólanum, gefið saumavjel og hjálpað stúlkunum til að fá það efni, sem þær þurfa til saumanna, og tvær konur úr okkar deild hjálpuðu kennaranum að segja til í saum- um á hverjum föstudegi. Við höfum ennfremur komið því til leiðar, að vinnustofu var komið fyrir í kjallara skólans handa drengjum til smíðakenslu, og þeim gefin öll þau smíðatól sem þurfa við almennar smíðar. Við höfum haft eftirlit með skemtigarði þorpsins og plantað í hann trjám o. s. frv. Við höfum rjett þeim hjálparhönd, sem bágt hafa átt, og reynt til að ljetta byrði þeirra. Kirkjumál höfum við lítið stutt, þareð allar kirkjur hafa sín kvenfjelög, en í okkar hóp hafa verið konur úr öllum kirkjudeildum. Þetta er aðeins það sem éih lítil deild hefur afkast- að, svo þú getur gert þjer í hugarlund, hvað allar deildirnar starfa. Samt vantar mikið á, að það mark náist, sem maður hefur sett sjer. Aðalatriðið er að fólkið skilji, að það er ein heild, ein starfandi, lífræn heild, sem afkastað getur miklu, ef allir eru samtaka. Jeg vil svo að endingu biðja þig að taka viljann fyr- ir verkið með þessa greinargerð og fyrirgefa þau mis- smíði, sem á henni kunna að vera. , Andrea Tryggvadóttir. ' ! Árborg, Manitoba, Canada.