Élíti ÍÖ i 6. Fjelagið hefur reynt að vekja áhuga.fólks fyrir heimilisiðnaði og hefur stofnað til sýningar á heima- unnum munum. Til að afla fjelaginu fjár hafa verið haldnar skemti- samkomur og ein hlutavelta. Eignir fjelagsins voru í ársbyrjun 1929 kr. 278.00, en fjelagar eru 30. Það hefur verið föst regla að lesa húslestur á hverjum fundi og eru þá einnig sungnir viðeigandi sálmar. Venjulega er skemt með einhverju eftir fund og þá höfð sameiginleg kaffidrykkja. Magndís Aradóttir, p. t. formaður. Ferðir íslenskra stúlkna til útlanda. Það er útþrá í íslendingum. Utanfarir virðast fara sívaxandi. Mjer vitanlega hefur aldrei verið gerð áætl- un um það, hve miklu íslendingar eyða árlega í ferða- lög til útlanda og til dvalar þar. Jeg giska á að það sje varla minna en 34 miljónir króna. Álitleg fúlga, ef rjett er giskað á. Sú upphæð ætti að teljast með inn- flutningsmegin, þegar gert er upp til peninga árlégur innflutningur og útflutningur. Slíkar utanferðir bér síst að lasta, sjerstaklega ef vjer höfum efni á þeim. »Heimskt er heima alið barn«, segir gamalt máltæki. Þjóðunum er jafnnauðsynlegt að kynnast öðrum þjóðum og þeirra ástæðum af sjón og reynd, eins og nauðsynlegt er til hollustu að opna her- bergisglugga eða lofa sólinni að skína inn í dagleg hí- 2*