30 tilin gott. Fáar Kínverskar húsmæður eiga við þau kjör að bua, að stallsystur þeirra á íslandi kysu að standa í þeirra sp'orum. Vaninn deyfir tilfinhingarnar og dreg- ur úr sársauka, og vanþekkingin gerir sitt til að menn þrífast í illum húsakynnum og óþrifnaði, við misrjet^i og allskonar ófögnuð. Reyrðir fætur t. d. er æfilöng þjáning. Hjer í næsta húsi er kona með tvö börn á brjósti, dreng á þriðja ári og stúlku bráðum eins árs. En það er ekki tilgangur þessa greinarkorns að lýsa kjörum kínverskra kvenna. Tengchov, Honan, China, 15. apríl 1931. Herborg ólafsson. Heilbrigðismál. Hver á að hjúkra sængurkonum i sveitum? Þessi spurning: »Hver á að hjúkra sængurkonum í sveitum?« kemur oft upp í huga mínum, þegar kon- urnar eru að segja mjer hvernig gengið hafi, þegar þær áttu þetta og þetta barnið sitt. Oftast áttu þær við eitt og annað að stríða. Fæðingin gekk stundum erfiðlega, en venjulega tók þó Ijósmóðirin á móti barn- inu og veitti konunni fæðingarhjálp eftir föngum. Þó héfur brugðið út af þessu, stundum náðist ekki nógu snemma í ljósmóðurina, af því langt var að fara eftir henni, og þá varð einhver á heimilinu að skilja á milli. Aðra mannlega hjálp fékk konan þá ekki. Þess eru þó dæmi, að konan fékk ekki einu sinni þessa hjálp, en varð sjálf'að skilja á milli, af því að engin mann-