42 Hlin Hið sama gildir um sjúkdómana, að miklu skiftir að haf a vit og þekkingu á að f orðast þá og koma í veg fyrir þá, þegar þess er nokkur kostur. Að leiðbeina í þeim efnum er gildur þáttur í starfi og skyldum lækn- anna. Og þjóðin má ekki skella skollaeyrum við hollum ráðum og hverskonar fræðslu, er miðar að því að varð- veita góða heilbrigði, sem er dýrmætasti fjársjóður hvers einasta manns. S. K. Heimilisiðnaður. Skýrsla um starfsemi Heimilisiönaðarfjelags tslands curið 1930. Fjelagið byrjaði árið'1930 með því að halda vefnað- arnámskeið. Fór kenslan fram í Landsspítalanum, og var Brynhildur Ingvarsdóttir kennarinn. Námskeiðið stóð yfir frá 5. jan. til 15. apríl, en að því loknu var haldin sýning á því, sem ofið hafði verið. Sýningin var haldin í hinu nýsmíðaða húsi Mjólkur- fjelags Reykjavíkur, við Hafnarstræti. Þóttu munir þeir, er unnir höfðu verið, hinir prýðilegustu; var mikið ofið úr íslenskri ull, og var bandið ýmist unnið í vjelum eða í heimahúsum og með ágætum litum. gamlir, þar eð líkindi væru til að þeir þyrftu þá að fara að nota gleraugu. Ritstj.