mtn 49 hafði jeg illan bifur á henni og vildi ekki eta hana, fyr en seint og síðar meir. Venjulega hafa menn þá reglu, að hafa laufin sem jöfnust á hverri köku, ef gerðin heimtar ekki mis- munandi stærðir, ti d. eins og þegar skornar eru marg- blaðaðar rósir eða rósahnútar, þá þurfa laufin að vera af ýmsum stærðum. Sumir skurðarmenn auka fjölbreytnina með því, að skera í kökurnar »kleinur« og »gorma« og fleira af "þessháttar »útflúri«. En jafnan finst nijer það skemma útlit laufabrauðsins, því að þá verður ekki eins mikið samræmi í gerðinni. Mjög eru menn misfljótir að skera. Hafa sumir náð 4