éö TÉltn mikilli leikni í því að skera vel og vera þó fljótir. Hef jeg oft furðað mig á því, hvað sumir unglingar eru fljótir að læra að skera laufabrauð, jafnvel börn 1012 ára geta orðið býsna leikin í þessari list. Sýnir það, ásamt mörgu fleiru, að þjóðin er listhneigð í eðli sínu. Hjer áður fyr kom það oft fyrir, að góðir skurðar- menn voru fengnir bæ frá bæ, til að skera laufabrauð, enda mun þá hafa verið lögð enn meiri áhersla á fall- egan skurð. Hefur því hnignað, eins og fleiru, við' fólksfækkunina í sveitunum. Þegar skurðinum er lokið, eru kökurnar steiktar í góðri tólg. Fær þá venjulega hver heimilismaður eina