Hlin 53 gæfu til að sjá að okkur í tíma, fslendingar, í þessu efni, því þetta er í raun réttri eitt *af okkar stórmálum, og hefur meiri þýðingu en við í fljótu bragði gerum okkur grein fyrir. Tökum öll höndum saman um að hrinda þessum mikilvægu málum áleiðis í orði og verki, og látum ásannast, að þjóðin fari að rísa upp úr þeim dróma, sem útlent prjál og einskisnýtur hjegómaskapur hefur mótað hana í. Seyðisfirði 4. júlí 1931. Elísabet Baldvinsdóttir. Notið vjelaaflið. Jeg sendi þjer nokkrar línur viðvíkjandi spunavjel- unum, ef þú vildir birta þær í Hlín. Vera má að þær hafi þau áhrif, að menn fari að hugsa um, hvort ekki muni heppilegt að láta vjelaorkuna Ijetta sjer erfiðið. Mjer virðist áhugi manná fyri'r að útvega sjer hand- snúnar spunavjelar minni nú en var fyrir nokkrum ár- um. Vera má að eftirspurn sje minni fyrir það, að þær eru orðnar útbreiddar um land alt. En önnur ástæða getur einnig komið til greina. f fyrstu eftir að menn fengu vjelarnar, var víða unnið á þær nótt sem dag að segja má, þar sem góðir spunamenn voru fyrir hendl. Sóttu þeir verkið af kappi og urðu mjög eftir sig, og sumir vart jafngóðir eftir, og vilja nokkrir þeirra helst ekki snerta á því verki framar. Jeg hef haft tal af nokkrum spunamönnum og hefur þeim fyllilega boríð saman um þetta að öllu verulegu leyti. En nú hefur mér tekist að gera þá endurbót á spuna- vjelunum, að hægt er að snúa þeim, hvórt sem heldur vill með handafli eða vjelaafli. Breytingar þær, sem gera þarf á vjelunum, eru mjög smávægilegar, og sá