54 Hlln kostnaður ekki teljandi að öðru en hreyfivjelinni, sem er 1 hestafls olíumótor eða 1 hestafls rafmagnsmótor, ef raforka er fyrir hendi. Verð á þessum vjelum verð- ur: Steinolíumótor ca. 200 kr. og eyðir hann nálega 5 lítrum af olíu á dag, miðað við 10 stunda vinnu, og raf- magnsmótor kostar ca. 130 kr. og eyðir % kilowatfe stundum á klukkutíma. Til samanburðar er rjett að geta þess, að vjelin skilar 50100% meiru af vinnu vjelknúin en handsnúin á sama tíma, auk þess að nú getur unglingur eða kvenmaður stjórnað vjelinni ó- þreyttur, en áður var það fullkomið erfiði fyrir karl- mann. Að mínu áliti verða það rafmótorarnir, sem hentug- astir verða til þessa út um land, þar sem rafstöðvar rísa nú óðum upp um allar sveitir landsins, og rekst- urskostnaðurinn verður þar mjög hverfandi, vegna þess hve lítilli orku svo litlir mótorar eyða. Þetta mál er vel þess vert, að því sje gaumur gefinn. Mestöll ullin liggur óseld í landinu, og þeir tímar virð- ast nú framundan, að hverjum sje best að búa að sínu. Það væri því ekki úr vegi fyrir bændur að athuga, hvort ekki sje hyggilegast fyrir þá að skapa sjer sjálf- ir verðmæti úr ullinni.*) Einw Sveinsson, frá Leirá, Njarðargötu 33, Reykjavík. Gandhi og heimilisiðnaðurinn. Enginn maður, hvorki lífs nje liðinn, hefur unnið heimilisiðnaðinum meira gagn en Gandhi, frelsishetja Indverja. Einn þátturinn í baráttu hans fyrir frelsi og *) Spunavjel eftir Einar, knúin með rafmagni, var á Lands- sýningunni 1930 og vakti mikla athygli. Vjelina átti Narfi Hallsteinsson pr. Akranesi. "Vjelin hefur veriö óseld til skamms tíma. Ritatj.