60 Hlin kennarar, bæði eldri og yngri, að fá mentun í náms- greininni. 2. Landssýning á handavinnu skólanna ætti að halda á 10 ára fresti eins og sýningu í heimilisiðnaði lands- manna, og sýna þar ekki einungis handavinnu barna- skólanna heldur sameina þar alla skóla landsins og námsskeið, sem njóta styrks af opinberu fje, yrði það myndarleg sýning og engu lakari en sýningar þær, er t'aka almenna vinnu til sýnis. Væri það hinn mesti heiður, álít jeg, fyrir Kennarasambandið, ef það gæti gengist fyrir þessu og leyst það sómasamlega af hendi. Jeg vil leggja til, að í þetta mál verði kosin nefnd nú þegar á þessu kennaraþingi, er hrindi því áleiðis með dugnaði. Jeg geri ráð fyrir að hver skóli muni standa straum af sinni deild fjárhagslega, svo það bakaði ekki Sam- bandinu kostnað. Svo sendi jeg Kennarasambandinu 'mínar bestu kveðjur og vona og óska, að því takist að leiða þetta þarfa mál til lykta á besta hátt. P. t. Reykjum í Hrútafirði í júnímánuði 1931. HaUdóra Bjarnadóttir. Viðgerð á gúmmískóm. Mig langar til að biðja Hlín fyrir eftirfarandi línur: Hjer á heimilinu notum við mikið af gúmmískóm, sem reynast misjafnlega. vel í notkun. Gráar gúmmí- hlífar bætum við á þann hátt að líma með gúmmílími bætur á þær eins lengi og hægt er. Við límum líka oft bætur neðan á botnana, þegar göt koma á þá. Þegar ónýtt er orðið ofan við sólana, er botninn oft óbættur og ekki nema hálfslitinn. Klippi jeg þá ofan af sólun- um við ihvítu bryddinguna. Jeg prjóna lengju úr fjór-