64 Hlín vatnið.Við reyrt band er fljótlegast að nota ljerefts- ræmur til umbindinga. Þær þurfa ekki áð vera lengri en svo, að þægilegt sje að einhnýta þeim utan um hesp- una. Sömu ræmurnar má nota hvað eftir annað, með því að sjóða þær á milli. Jeg þvæ hespurnar úr linu sápuvatni upp úr litnum og skola vel. Þessa eingirnissokka verður að prjóna á fína vjel, því þeir þurfa að vera fremur fast prjónaðir. Mín vjel er nr. Qy2, 85 nálar á hlið. Fitina eða snúninginn hef jeg vanalega 2527 umferðir á meðal-sokk. Snún- ingurinn þarf að vera fast prjónaður. En allur sokkur- inn fram að totu er 145150 umferðir. Hælinn prjóna jeg á eftir. Jeg hef haft þrjár stærðir af sokkunum.Það kémur fyrir, aðjeg þarf að rekja sokk upp vegna þess að gerðin verður of regluleg, það hitt- ist svo á með reyringuna. Það virðist ekki vera hægt að gefa neinar ákveðnar reglur fyrir aðferðinni við að reyra, svo maður komist hjá þessum óþægindum. Sokkarnir eru að meðaltali 7 lóð á þyngd. Jeg hef tekið 0.75 fyrir að prjóna þá. Eftir að búið er að prjóna sokkinn má ekki bleyta hann, því verður að hafa band- ið mjög vel hreint og fara hreinlega með það í prjóni og viðgerð. Loks eru sokkarnir pressaðir með deigu stykki, jeg hef ekki notað sokkatrje, en vel má vera að það sje fljótlegra, þá eru sokkarnir »dampaðir« á því og hengdir upp til þerris á trjenu. Jeg hef látið stopp- garnshönk fylgja þeim sokkum, sem jeg hef selt. Sólveig Rögnvaldsdóttir. Kaupið islenskar vörur. Það eru ekki svo fáar íslenskar vörutegundir komn- ar á markaðinn á seinni árum, vörum, sem að engu leyti standa erlendum vörum að baki. Sumar af iðngreinum þessum eiga erfitt uppdráttar,