Hlin ''¦'¦', ' -73 Nemendur skólans sitji' fyrir öðrum umsækjöndum að námsskeiðum þessum. II. Kermamr og nemenðmx. 5. gr. Við skólann starfar forstöðukona og 2 fastar kenslu- konur. Ennfremur ræður forstöðukonan aukakennara, eftir því, sem þörf krefur og fjárhagur leyfir. Forstöðukona hefur á hendi alla daglega stjórn skól- ans og kenslu eftir því, sem við verður komið. Hún varðveitir allar eignir skólans og semur skýrslu hans. Hún annast búrekstur skólans, annaðhvort fyrir sinn reikning eða skólans, eftir því sem um er samið við skólaráð. - ' 6. gr. ' Að jafnaði má eigi veita yngri stúlkum inntöku i yngri deild skólans en 18 ára. Þó getur forstöðukona veitt undanþágu, ef sjerstaklega stendur á. Nemendur greiði 100 krónur í skólagjald, þangað til öðruvísi verður ákveðið. Fyrir þetta fá þeir kenslu, húsnæði, rúmstæði með dýnum, ljós og hita. Áhöld til námsins fá þeir einnig, en verða að greiða skemdir á þeim. Þeir skulu hafa lokið fullnaðarprófi samkvæmt fræðslulögunum, hafa læknisvottorð og ábyrgð fyrir Öllum greiðslum til skólans. III. Skólastjórn. 7. gr. Yfirstjórn skólans hefur 3ja manna skólaráð. At- vinnumálaráðuneytið tilnefnir einn mann í skólaráðið,