, ÉHh 81 kröfunum til fæðis og klæða. Að öðrum kosti getur svo farið, að námið leiði til einskis góðs, heldur beinlínis til eyðslusemi og óhófs. Þá er og ætlaður lengri námstími seinni veturinn vegna hauststarfanna. Þau störf eru einhver hin allra þýðingarmestu fyrir sveitakonur og býr búið lengi að því, hvernig þau eru af hendi leyst. Garðyrkju vildum við ekki hafa skyldunámsgrein við skólann,. heldur ætla sjálfstæð garðyrkjunámsskeið að vorinu. Líklegt er, að nemöndum veitist erfitt að kosta lengri skóladvöl í einu en 2 vetrarnámsskeið, og óvíst að þeir hafi garðyrkjunáms not strax, er þeir koma af skólanum. Þegar að því kæmi, að þeir þyrftu á því að halda, standa garðyrkjunámsskeiðin þeim opin. Vornámsskeiðin oil eru til þess ætluð að gefa ungum stúlkum kost á að dvelja nokkrar vikur að vorlagi á þessum fagra skólastað. Fyrst kenslukraftar og hús- rúm leyfir, virðist óeðlilegt að nota ekki vorið á ein- hvern hátt til skólastárfs. Ekki er ósennilegt að stúlk- ur úr þorpum og kaupstöðum Austurlands notuðu þetta tækifæri til að eiga stutta sumardvöl í skólanum. Gæti þeim orðið það bæði gagn og gaman. í öðru lagi gætu þessi námsskeið orðið nokkur uppbót á því, að helm- ingi færri nemendur komast að á vetrarskólanum, af því hann er miðaður við tveggja vetra nám. Um 5. gr. Ekki þótti fært, fjárhagsins vegna, að ætla nema tvær fastar kenslukonur, auk forstöðukonu. En reynsl- an mun sýna, að það er of lítið í verklegum skóla með alt að 30 nemöndum, þar sem kenna á f jöldamargar og sundurleitar námsgreinar og þó nokkrar bóklegar. Má því gera ráð fyrir að ráða þurfi aukakennara, áður langt líður. Kenslukonurnar eru ráðnar svona marga