86 Hlín Fjórðungsþingin kjósa fulltróa, einn eða fleiri, eftir föstum reglum, til að sækja Landsþingin. Á Landsþing- unum eru svo mál f jórðunganna eða hjeraðanna rædd, og þau send.rjetta boðleið til Alþingis, ef þuirfa þykir. Búnaðarfjélag íslands og Fiskifjelag íslands hafa mjög ríflegan styrk úr ríkissjóði: B. í. 250.000, en Fiskifje- lagið 90.000, enda hafa þau marga menn í þjónustu sinni. . Við viljum láta okkar stóra Kvenfjelagasamband verða hliðstætt þessum fjelagasamböndum.' Kvenfjelagasamband íslands var fyrsti minnisvarð- inn, sem reistur var á árinu 1930. Það mun á ókomnum árum vinna að þjóðþrifum og að heill lands og lýðs, því að það er vitað, að undirstaða þjóðfjelagsins er vagga barnanna. »Bóndi er bústólpi, bú er landstólpk, segir í göml- um fræðum, svo er enn í dag. En svo best geta heimilin verið landsstólpar, að þau séu byggð á traustum grund- velli trúar, siðgæðis og þekkingar. Við viljum hlynna að hýbýlaprýði og heimilisþrifnaði. Við viljum vinna að bættum húsakynnum og skipulagi húsa, endurreisn heimilisiðnaðar til klæðnaðar og prýðis. Við viljum efla garðrækt og hagkvæma matargerð. yið viljum vinna að öllum þeim málum, sem mega yerða íslensku þjóðinni til þrifnaðar og blessunar. Til þess að konur geti tekið lifandi þátt í þessum málum, hafa kvenfje- löginstofnað landssamband með sjer: Kvenfjelagasam- band fslands. En hvernig má nú K. f. koma þessum málum í fram- kvæmd? Við viljum fá rfflegan styrk frá Alþingi. Við höfum nú þegar samþykt tillögur, sem fara fram á aukna kenslu í handavinnu og matreiðslu í barnaskólum kaup- staðanna og þar sem eru fasta-skólar fyrir barna-