92 HUn Ef húsmæðraskóli yrði stofnaður f Reykjavík, ætl- umst vjer til, að bærinn legði fram helming stofnkostn- aðar. 4. Að síðustu förum vjer fram á, að á næstu fjár- lögum verði áætlað f je til þess að koma upp kennara- skóla í húsmóðurstörfum. Hvort sá skóli yrði sjálf- stæður eða í sambandi við húsmæðraskóla gæti komið til álita. Búnaðarfjelag íslands hefur á sínum tíma, (þá það þáði gjöf til stofnunar húsmæðrafræðslu í landinu), lofað að sjá húsmæðrafræðslunni farborða. Það mun því telja sjer skyft að styðja þetta mál, enda hefur það ljóslega komið fram á síðustu Búnaðarþing- um. Vjer teljum kensluskóla fyrir kennara húsmæðra mjög nauðsynlegan,'því fræðsla íslenskra húsmæðra á að miðast við íslenska staðhætti, en það verður því að- eins, að hjer sje hægt að afla sjer fræðslu í þeim efnum. Vjer sjáum eigi ástæður til að orðlengja þetta frek- ar, en væntum alls hins besta af hinni háu ríkisstjórn. Reykjavík, 12. nóvember 1930. f stjórn Kvenfjelagasambands fslands: Ragnhildur Pjetursdóttir. Guðrún J. Briem. Chiðrún Pjetwsdóttir. Til atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins. Hvernig á eldhúsið að vera? Oft hefur mjer dottið í hug að reyna að lýsa því, hvernig jeg kysi helst að hafa tilhögun í eldhúsi. Þó jeg hafi lítið þurft að gegna eldhúsverkum, þá hefi jeg mikið hugsað um, hvernig eldhúsin yrðu hag- anlegast útbúin, og þar sem »Hlín« hefur hreyft þessu