Hlín 93 máli, en fáar eða engar konur látið í ljós álit sitt um það, þá ætla jeg að lýsa hugmynd minni n stuttu máli. Gæti það orðið til þess, að konur færu að hugsa meira um þetta en verið hefur, og jafnframt láta í ljós álit sitt um það, þá þættist jeg ekki hafa skrifað til ónýtis. Jeg hef hugsað mjer stærð eldhússins 4 metra á hvern veg, með glugga mót vestri, matargeymslu í kjallara undir eldhúsinu og hús fyrir eldsneyti áfast því. Dyr á suðurvegg eða austurvegg eða hvorttveggja, eftir því hvernig til hagar með íbúðina. í þessari lýsingu er gengið inn í eldhúsið að sunnan, tæpan metra frá vesturvegg (útvegg). Er þá fyrst eldavjelin til hægri, rjett við dyrnar, laus frá vegg, svo hægt sje að þurka bak við hana. Kemur það sjer oft vel. Austur við vegginn er æskilegt að hafa afþiljað pláss til geymslu (ca. 1X2 metra) með hillum. þar mætti geyma sykur o. fl., sem ekki má vera í raka. Framhlið þessarar kompu má vera ca. 30 cm. lengra norður en hún sjálf, í horni því, er þar myndast, sjeu hillur til að láta á smápotta og önnur slík ílát. Norð- an við geymsluna er vatnskrani, skólpskál og þvotta- skál. Með vesturvegg er eldhúsbekkurinn og tekur hann yfir þvert húsið. Undir honum eru skápar og hólf fyrir stærstu potta og skúffur fyrir hrísgrjón, hafragrjón, hveiti o. fl. Skápar yfir bekkendum fyrir leirtau og diskarekk hjá glugganum. Stiginn ofan í kjallarann við norðurvegginn, rjett við eldhúsbekkinn; yfir stiga- gatinu ljettur og traustur hleri. Ef þessi ófullkomna lýsing finnur náð fyrir augum »Hlínar«, þá bið jeg tilvonandi lesendur að athuga það, að varla er hægt að gera ráð fyrir, að hver hlutur sje settur nákvæmlega á þann stað, sem til. er tekinn í lýs- ingunni, því það fer eftir gerð alls hússins og geð- þekkni hvers eins, heldur er þetta ábending um það, hvernig innrjetting eldhúss eigi að vera, hvað þar