102 ' i Hlín ur ennþá starfað með sömu regíugerð, þá ætla jeg að geta um helstu atriði hennar. Námstími skólans er 9|/2 mánuður. Telst skólaárið frá 15. sept. til júníloka. Skal skólinn sniðinn eftir fyrirmyndar sveitaheimili. Nemendur skulu taka þátt í heimilisverkum þeim, sem þýðingu hafa fyrir verk- legt nám þeirra. Eiginhandar umsókn um inntöku sendist forstöðukonu skólans fyrir 14. maí. Umsækj- endur sjeu ekki yngri en 18 ára. Umsókninni fylgi heilbrigðisvottorð. Hver námsstúlka skal, er hún kem- ur í skólann, greiða helming skólagjaldsins og setja tryggingu fyrir, að hinn helmingur þess verði greidd- ur á miðju skólaári. Bóklegar námsgreinar eru: íslenska, stærðfræði, næringarefnafræði, og ennfremur lítið eitt í efna- og eðlisfræði. Heilsufræði ásamt sjúkrahjálp í viðlögum. Garðyrkja. Þjóðfjelagsfræði. Verklegar námsgreinar: Matreiðsla, almenn og fínni, bökun, pilsugerð, sláturgerð og ýmisleg mat- vælageymsla, mjólkurmeðferð (smjör-, skyr- og osta- gerð). Einnig læra námsmeyjar að fara með ýmiskon- ar grænmeti, bæði til geymslu og matreiðslu og safta og mauka ber og tröllasúru (Rabarbara). Hannyrðir: Fatasaumur, ljereftasaumur, ýmiskonar útsaumur. önnur heimilisstörf: Húsræsting, þvottur, línsljett- un og sterking, fatahreinsun. Að leggja á borð og ganga um beina. Námsmeyjar hafa, auk þess sem hjer er talið, fengið tilsögn í fleiri bóklegum og verk- legum námsgreinum, ef þær hafa óskað eftir því. Skólakostnaður: Skólagjald heíur verið kr. 75.00. Sameíginlegt mötuneyti hefur verið í skólanum, nema fyrstu tvo veturna, og hefur kostnaðurinn verið rúmar 40 kr. á mánuði. Verkefnakostnaður er nokkuð mis- jafn, fer það mjög eftir því úr hvaða efni námsmeyj-