104 Hlín Húsræsting fer aðallega fram á morgnana, áður en bóklegt nám byrjar. Fyrri hluta vetrar er þveginn þvottur í hverri viku, en eftir nýjár aðra hvora viku. Eftir nýjár er náms- meyjum fækkað í eldhúsinu, þá eru aðeins tvær stúlk- ur við matreiðsluna í einu og tveir bakarar, sem baka annanhvorn dag. Bóklegir tímar byrja á morgnana kl. 8, og standa yfir til kl. 9y2, þá bréiða námsmeyjar yfir rúm sín og skifta um föt, þær sem setjast inn við handavinnu. Verklegt nám byrjar kl. 10 f. m. og heldur áfram til kl. 614 e. m., með klukkutíma matarhljei (121) og klukkutíma kaffihljei (34). Bóklegur tími er frá kl. 45 e. m. Kvöldverður borðaður kl. 7. Háttað og ljós slökt kl. 10 alla virka daga, nema á laugardagskvöld- um. Með ofangreindri tilhögun skiftast tímar hjer um bil þannig: Verklegt: Ræsting, þvottur og viðgerðir ........ 130 st. Matreiðsla öll, niðursuða, mjólkurmeðferð og ýms eldhússtörf ............... 720 <5arðyrkja, verkleg................. 50 Handavinna: Saumur, vefnaður, prjón .. 390 Bóklegt: fslenska ......... ............. 80 st. Stærðfræði ... .. ... ........... 85 Næringarefnafræði, einnig efna- og eðlisfræði 80 Uppeldisfræði og þjóðfjelagsfræði ...... 29 Heilsufræði og hjúkrun sjúkra ......... 72 Garðyrkja ................... 14 Kensluna við skólann hafa annast þrír kennarar. Flestar hafa námsmeyjar verið 20. Síðastliðið haust