HUn 105 var 26 stúlkum veitt inntaka í skólann, en af þeim komu ekki nema 17, hinar fötluðust frá á ýmsan hátt. Að svo mörgum'var veitt loforð um skólann stafaði af því, að skólahúsið var stækkað að miklum mun á síðastliðnu ári, og alltaf má-búast við vanhöldum. Nú rúmar skólinn 2224 nemendur og hefur sæmilega rúmgóðar skólastofur, ágæta miðstöð, heitt og kalt vatn um alt húsið, bað og vatnssalerni. Rúmin eru með gormvírsbotnum og dýnum. öll herbergi skólans eru nú veggfóðruð, og gólfin eru annaðhvort dúklögð eða gljáborin. Eldhúsið með flíslögðum veggjum og dúk- lögðu gólfi, uppþvottavaski, skol- og skólpvaski. Samgöngur við skólann hafa mjög batnað á þessu ári. Bílvegur er kominn heim í hlað. Ríkisskipin hafa hjer viðkomustað, þegar þau koma inn í Hvammsf jörð. Svo er mótorbátur hjer á staðnum, sem annast flutn- inga þá, er skólinn þarfnast með. Skemtanir hafa ekki verið margar hjer, bæði hefur rúm ekki leyft inniskemtanir fyr en nú síðastliðinn vetur, og nemendur hafa lagt svo mikið kapp á námið, jafnvel fram yfir það sem þeim er ætlað, að þær hafa ekki sint skemtunum mikið, þó kostur hafi verið á þeim. Laugardagskvöldin eru höfð hjer í mestum heiðri. Námi er þá lokið kl. 5 ]/2, og kvöldverður snædd- ur kl. 6. Þá prúðbúa stúlkur sig og halda kvöldin há- tíðleg í híbýlum forstöðukonu. Vinna þá námsmeyjar að þeim hannyrðum, sem þeim líkar, þá er upplestur og útvarp til skemtunar (útvarp var sett í skólann strax fyrsta veturinn), viðræður og kaffidrykkja. Á sunnudögum er stundum dansað, stíginn vikivaki og leiknir aðrir leikir. Við og við er farið i útileiki og námsmeyjar mjög hvattar til útivistar. Hjer á staðnum er kirkja, sími, brjefhirðing, og svo er hjer nýbygt samkomuhús, svo námsmeyjum er auð- velt að taka þátt í þeim skemtunum, sem þar eru á