106 Hlln boðstólum. Á síðastliðnu vori var hjer, á meðan skól- inn stóð yfir, haldið vikunámsskeið fyrir aðkomukon- ur. Var þar sýnd ýmiskonar matreiðsla, niðursuða, pilsugerð, flutt erindi o. fl. Heilsufar hefur altaf verið ágætt í skólanum, kvef yarla þekst. Staðarfelli 5. ágúst 1931. Sigurborg Kristjánsdóttir. Elliheimilið Höfn" á Seyðisfirði. Ritstjóri »Hlínar« hefur mælst til að fá nokkrar upplýsingar um Elliheimilíð »Höfn« handa blaði sínu. Hefur það dregist lengi að verða við þeim tilmælum, en nú viljum vjer með fáum orðum skýra frá þessu máli. Kvenfjelagið »Kyik« á Seyðisfirði hafði í nokkur ár safnað fje í þeim tilgangi að stofna elliheimili hjer í bænum. Haustið 1928 rjeðst fjelagið í að kaupa hús- eign fyrir kr. 16,500. Fjelagið borgaði kr. 10,000 út í hönd, en varð að taka kr. 6,500 lán til að greiða hús- verðið. Húsið er vandað, 12 herbergi, kjallari, fjós, hlaða, skúr og tún, sem fóðrar eina kú. Einnig fylgir trjá- og matjurtagarður, sem hefur gefið af sjer 23 tunnur af rófum, einnig rabarbara og ýmiskonar grænmeti. í húsið vantar miðstöð, vatnssalerni og fl., en úr því verður nú vonandi hægt að bæta. í fyrra- haust var nokkur hluti hússins járnklæddur, og verð- ur lokið við það bráðlega. Einnig verður reynt að koma upp miðstöð, svo fljótt sem auðið er. Heimilið var nefnt »Höfn« og tók til starfa 12. jan. 1929. Ráðskbna var ráðin og vinnukona. Innanhúss-