Hlin 107 muni og öll áhöld þurfti fjelagið auðvitaö að kaupa, svo sem venjuleg húsgögn, rúmstæði, rúmfatnað o. fl. og er því skuldabagginn orðinn talsvert þungur. Frá ríkissjóði fjekk fjelagið upp í stofnkostnað kr. 2,500, og 1931 1000 króna styrk. Það var ágæt hjálp, og von- ar f jelagið aðv halda þeim styrk framvegis. Á heimilinu hafa verið alls 18 manns. Þaraf hafa nokkrir dáið, komið þangað þungt haldnir af veikind- um. Nú sem stendur dvelja þar 8 manns. f fyrra hafði bærinn leigt þar 1 stofu, sökum , rúmleysi's á sjúkrahúsinu, og dvöldu þar alls 9 Englendingar. Einnig hafa aðkomumenn fengið leigt herbergi þar, þegar rú'm hefur verið, um lengri eða skemmri tíma. Pakklátssemi. Amerísk smdsaga. Það er alkunnugt, að Abraham Lincolri, Bandaríkja- forseti, unni móður sinni hugástum. Hann blessaði og heiðraði minningu hennar alía æfi, og þó var hann barn að aldri, aðeins 9 ára gamall, þegar móðirin dó. »Alt á jeg það henni að þakka, hvað úr mjer hefur orðið«, sagði hann oft. Jeg ætla nú að segja ykkur söguna af forsetanum og sáralækninum Jóhanni Wilkins. Þegar saga þessi gerð- ist geysaði þrælastríðið í Bandaríkjunum. Jóhann Wil- kins var ungur læknir og í mjög miklu áliti sem sára- læknir. Særðu hermennirnir vildu sem flestir komast undir hans hendur, er ótti dauðans greip þá. Jóhann var önnum kafinn frá morgni til kvölds. Hann gaf sjer ekki einu sinni tíma til að skrifa móður sinni, vikum