mín 87 Plönturnar eiga að fá áburðinn fyrir vaxtarskeiðið eða á því. Það er mismunandi, hve mikið vatn plöntur þm*fa, fer það eftir hita og kulda, sól og skugga, sumri og vetri, vaxtarskeiði og hvíldarskeiði, upprunalegu heimkynni og byggingu plantnanna. Plöntur með þykkum, hárguðum, safamiklum blöðum og stönglum, eins og t. d. Cackis, Agava, steinbrjótar og hellu- hnoðrar þurfa ekki tíða vökvun. Plöntur með þunn- um og mjúkum blöðum, eins og t. d. Hortensía, og Adi- antum, þurfa mikið vatn. Ungai* plöntur og á vaxtar- skeiði þurfa mest vatn. Ekki ætti að vökva um há- degisbilið, það kælir plöntumar of mikið, gott er að vökva með ofurlítið volgu vatni. Vökva skal meira á sumrum en vetrum,. og meir í hitum en kuldum. Með því að banka með hnúanum utan á blómsturpott- ana, er hægt að vita, hvort plantan þarfnast vatns eða ekki. Þegar moldin í pottunum er þur, dregst hún saman, og tómt bil verður milli moldarinnar og pottar- ins. Potturinn gefur þá frá sjer holt og hvelt hljóð. Þegar moldin í pottunum er mettuð af vatni, gefur potturinn frá sér lágt og dimt hljóð. Ekki skal vökva nema plöntumar þwfi vatns, en gott er að lita eftir þeim á hverjum degi, og vökva ef þörf krefur. Gæta skal þess, að vatn komi ekki á plönturnar við vökvun- ina, það getur orsakað bletti. Eins skal varast að hafa vatn á þeim skálum, sem eru undir pottunum, það get- ur valdið súr. Plöntur eru mismunandi ljóselskar,, fer það eftir byggingu þeirra, upprunalegu heimkynni og og aldri. Það fer oft saman, að plöntur, sem þurfa lít- ið vatn, þola mikla sól, þau eru útbúin með ýmsum varnartækjum, sem hindra uppgufun, hárum og þorn- um, eins og t. d. Cactus. Plöntur, sem þrífast best í skugga,. þurfa mikið vátn, eins og t. d. Bregner, Adi-