70 HUn þar sem hún megi alsæl una í sambúð við algóðan Guð sinn og föður og alla horfna ástvini sína. Þakka fyrir kynninguna góðu. Keykjavflc í des. 1934. B. F. Magnússon. Móðurminning. Vel gerir þú, »Hlín«, að örfa okkur íslands sonu og dætur til að halda uppi minningu og virðingu bless- aðra mæðranna okkar, hvort sem þær eru enn hjá okkur eða hafa fjarlægst okkur um stundarsakir. Ætti öllum börnum að vera það einkar hugljúft, það er svo mörg dýrmæt endurminningin frá þeim sælutímum, sem við synir og dætur vorum undir handleiðslu og eftirliti foreldranna, og því unaðsríkt að rifja upp fyrir sjer og rita um liðin ungdómsár þegar alt ljek í lyndi, lífið brosti við manni, áhyggjur og erfiðleikar þektust ekki, hugsanir og tilfinningar voru hreinar, hlýjar og kærleiksríkar til allra manna, enginn kali eða kvíði, alt sólfagurt og bjart framundan. Lifið brosti við og leið áfram sem ljettur lax í straumi. Við þessar endurminningar dvelur hugur minn oft. Fyllist þá hjarta mitt hrifningu og gleði, samfara bljúgu og klökku þakklæti til Guðs og góðra manna, sem jeg naut samvistar og samveru með og sýndu mjer ástríka og prúða framkomu að breyta eftir eins og blessaðir foreldrar mínir, sem lögðu alla krafta sína fram til að gera okkur börnin sín að nýtum og