ÉUn 93 jurtagarð«. Eftir 2. tíma dvöl var svo haldið alla leið að Kaustur-Möðruvöllum. Fengu börnin að skoða þar kirkjuna og Guðbrandarbiblíu, sem óvíða er til; letrið á henni er nú flestum skólabörnum hreinasta hebreska. Einnig skoðuðu börnin kirkjugarðinn, sem geymir leifar merkra og góðra manna, eins og fleiri slíkir reitir. Er of lítið gert að því að gróðursetja trje í kírkjugörðum, svo að þeir beri vott um líf ekki síður en dauða. Þó að þetta sumarferðalag stæði ekki yfir nema einn dag, höfðu börnin mjög gaman af því. Er ólíku saman að jafna að lesa um sögustaði eða að sjá þá. At- hugunargáfa barnanna skerpist, fjelagsandi þroskast og hver veit nema að góðar minningar frá þessum ferðalögum hlýi huga þeirra margan kaldan dag seinna á æfinni. Skólanefndin kom sjer saman um að efna til nýrrav ferðar sumarið 1933 og láta börnin sjálf starfa að samkomu til þess að hafa inn fje og draga þannig úr kostnaði við ferðalagið. Hafði skólanefndin þar til fyrirmyndar hinn ágæta barnaskólastjóra Snorra Sig- fússon á Akureyri. Lætur hann skólabörn hafa fjöl- breytta og skemtilega samkomu á hverjum vetri og fer svo með börnin í ferðalag að vorinu. Börnin í Saurbæjarskólahjeraði höfðu svo samkomu síðdegis á annan í hvítasunnu og kom inn talsvert f je. Var nú ákveðið að fara til Sauðárkróks. Þrjátíu manns tók þátt í förinni, flest fullnaðarprófsbörn og næsti árgangur á undan. Viarð hver að sjá sjer fyrir fæði; höfðu börnin það með sjer. Borguðu fullnaðarprófs- börnin aðeins kr. 2.00 í fargjald, en aðrir kr. 5.00. Skólanefnd sá um sameiginlegt kaffi handa öllum. Lögðum viö af stað í góðu veðri 1. júlí. í förinni var aðalkennari farskólans, Pálmi Kristjánsson og