Hlín 108 sje úr timbri, en þareð mjög ríður á, að þar sje vel um búið,, ættu menn að leita sjer fullra upplýsinga um gerð þess, áður en verk er hafið. í þessu húsi er engin sjerstök geymsla, nema fataskápurinn í fordyr- inu og búrskápur í eldhúsi. Það verður því að vera reist í sambandi við »gamla bæinn«,. þar sem væntan- lega eru sæmilegar geymslur, eða, ef um nýbýli er að ræða, mætti gera geymslur úr torfi og grjóti að forn- um sið, líkt og sýnt er á uppdrættinum, og ætti það hús að geta verið alger heimilisiðnaður. Þak þess verð- ur að vera vatnshelt og ná út á ytri brún veggja. Hús,. með veggjum vel hlöðnum úr grjóti og þurru torfi og síðan vatnshelt þak á, geta enst afar lengi, ef nokk- urt lag er á. Það er því bæði skaði og skömm, hve lítil rækt hefur verið lögð við hina fornu húsagerð. Torfbæina notuðum við í þúsund ár. Senhilega hefur þeim yfirleitt hnignað frá sjónarmiði stíls, fyrirkomu- lags og frágangs, eftir því sem aldir liðu. Síðast voru þeir yfirgefnir sem ónýtur arfur,, og í þess stað ginið við erlendum byggingaefnum og stílleysum, með þeirri áfergju, sem vanalega er samfara vanþekkingu. Þó kæmi mjer ekki á óvart, að þeir ættu enn eftir að rísa upp, breyttir og lagaðir, eftir kröfum og þörfum nýrri tíma. Smíð áðurnefnds húss er yfirleitt mjög einföld og auðveld, og stafar það mest af því, hve lágt það er. Veggirnir eru hvergi hærri en um 23/á metri yfir jörð, og til samanburðar er vert að athuga, að steyptir stafnar á þeim húsum, sem venjulegast eru reist í sveitum, eru um 7 metrar yfir jörð. Svo háir veggir eru ekkert viðvanings-meðfæri. Til þess að verkamenn geti komist að vinnu sinni við steypu og mótagerð þarf háar trönur, og ef verkið á ekki að ganga úr hófi seint,. er töluverður mannafli nauðsynlegur,