HUn 121 Búnaðwrsamband V.-Húnavatnssýslu leggur 1935 fram kr. 300.00 til garðyrkju á sambandssvæðinu og kr. 80.00 til styrkt- ar einni spunavjel í hverjum hreppi. Á Búnaðarsambandssvæði Dala- og Snæfellsness eru nú 12 14 spunavjelar í notkun, flestar eign kvenfjelaga og ungmeima- fjelaga og styrktar af Búnaðarsambandinu. Búnaðwrfjelag Islands hefur árið 1933 og 1934 veitt styrk (Yz) úr Verkfærakaupasjóði á 22 spunavjelar, 69 flatprjóna- vjelar og 28 hringprjónavjelar. Búnaðarsamband Eyjafjarðar veitir árið 1934 kr. S00.00 styrk til garðyrkju á sambandssvæðinu. Búnaðwrsamband Skagfirðinga lagði árið 1933 fram 2500 kr. fyrir útsæði, fræ, garðyrkjuverkfæri og' leiðbeiningar í garð- yrkju á sambandssvæðinu. Tólgarsápa. 11 pelar feiti, 7 pQlar kalt vatn, 1 baukur sterki sódi (Red seal). Sódinn (duftið úr bauknum) er hrist út í vatnið og hrært vel í á meðan. Vatnið sjóðhitnar af sód- anum, en það verður að kólna vel áður en það er hrært saman við feitina, sem er brædd í öðru íláti. Feitina (úrgangsfeiti) á að hita svo lítið sem hægt er, aðeins svo, að hún bráðni. Þegar búið er að taka pottinn með feitinni af eldinum, er sódavatninu helt í og hrært vel í á meðan. (Ekkert soðið). Hlemmur er látinn yfir ílátið og breitt vel yfir. Látið standá þangað til sápan er vel storkin, skorin upp í stengur og stykki. Svona sápu hef jeg notað í mörg ár og reynst hún prýði- lega. B. B. Mörflot (vestfirskt). Mörinn, viku eða hálfsmánaðar gam- all, er malaður í stórri kjötkvörn eða fleðaður í þunnar fleður, síðan hnoðaður með höndunum þangað til komin er velgja í hann og hann er hættur að loða við trogið. Hann er barinn saman eins og skaka (tafla) og þess gætt, að ekki sjeu í henni holur. Töflurnar eru hafðar 5 pund á þyngd.. Þegax líður á. vetur, áður en vorhitar byrja, er gott að láta töflurnar í saltpækil, þeim hættir annars við að þrána, þegar hitnar. Mjer hefur fundist venjuleg tólg svo feitilítil, að ekki væri vanþörf á viðbiti tneð henni. Alt öðru málið er að gegna með mörflotið, það er, að dómi okkar Vestfirðinga, feitt og gott viðbit. Með blautfiski er það brætt sem venjuleg feiti, en ætli maður að hafa það við harðfiski, er það brætt, en látið storkna aftur og er þá ágætt viðbit. B. S. Gömul kona % Arnardal í fsafjarðarsýslu skrifar: Jeg hef