150 DVÖL í garðmnm Eftir Danfel Kalicstein Gunnlaugur Pétursson þýddi Á hverjum degi hefi ég setið í þessum garði og horft á konu eina aka taarnavagni framhjá. Á morgun ætla ég að fara í annan garð og sitja þar í hádegishléinu. Mér þykir það leiðinlegt, en ég get ekki komið hingað oftar. Það er orðið áliðið hausts og brátt líður að því, að ég get ekki setið og borðað hádegisbitann undir beru lofti. Það getur komið úrhellisrign- ing eða frost og snjór. Eða þá þoka. Vetur gamli situr þá á þessum bekk og klórar græna litinn burt með löngum, ísuðum nöglunum. Nei, ég get ekki farið hingað oftar, eða í nokkurn annan garð, síðari hluta dags. Ég maula þá brauðsneiðarnar mínar 1 skrifstofunni og fæst við krossgátu, en vélritunarstúlkan suðar og þvaðrar. Þá segir ungfrú Watson með sinni syngjandi röddu: Ó, herra Seidleman, eruð þér bú- inn að borða? (Mjóa röddin hennar hækkar og lækkar.) Ó, herra Seidle- man, klukkan er orðin hálf tvö. (Þá svarar hann, svangur og hálfgram- ur: Já, já, já aðeins andartak." Leyfið mér að þurrka ostinn úr yfirskegginu.... Ó, herra Seidle- man, viljið þér svara í símann? .... Já, já, já, .. Andartak, andartak. .... Já, Kleiner.... Já, þetta er, hjá Kleiner.... Andartak___ Ó, herra Seidleman! Ó, herra Seidle- man! Ó, herra Seidleman!" er ólíkt öðru bóluefni að því leyti, að það er unnið úr blóði sýktu með tveimur ólíkum sýklum, inflúensu- sýklum og sýklum, er valda sjúk- dómi í öndunarfærum ungra hunda (distemper). Vísindamennirnir við Rockefellerstofnun þá, sem áður getur, höfðu um langan tíma gert tilraunir með bóluefni, samsett úr ýmsum tegundum inflúensu-blóð- serums", án þess að það bæri nokkurn árangur. Þá bar svo við, að tilraunarotturnar sýktust af distemper", og þar sem til var bóluefni gegn þeim sjúkdómi, var því dælt í rottur þær, sem sýktar voru. Þessar rottur reyndust síðar ónæmar fyrir inflúensu, en aðrar ekki. Þannig fannst bóluefnið. Á síðastliðnum vetri brauzt út inflúensufaraldur í Englandi, og barst hann einnig hingað til lands. Bandarikjamenn sendu þá fyrstu birgðirnar af inflúensubóluefni til Englands, og var það nægilegt til að bólusetja hálfa miljón manna. Skipinu, sem flutti bóluefnið, var sökkt af þýzkum kafbáti. Það kom þó ekki að sök, því að inflúensan reyndist væg. Nú munu Englend- ingar sjálfir vera farnir að búa til bóluefni þetta.