Hlín - 01.01.1961, Blaðsíða 114
Kirkjukórar í Norður-Þingeyjarsýslu.
Kæra Halldóra. Þú varst að biðja mig að segja þjer dá-
lítið frá söngstarfseminni fyrir norðan. — Það eru kórar
við allar kirkjurnar hjerna, að vísu fámennir sumstaðar,
t. d. við Víðirhólskirkju á Fjöllum, um 8 manns, en þar
eru góðar raddir. — Organisti þar er Kristín Axelsdóttir
(frá Ási í Kelduhverfi), húsfreyja í Grímstungu. — Odd-
ný Árnadóttir á Þórshöfn er söngstjóri og organisti
kirkjukórs Sauðaneskirkju, Þóraxinn Kristjánsson, Holti,
Þistilfirði, við Svalbaiðskirkju. — Ragnar Helgason við
Snartastaðakii'kju, Hólmfríður Árnadóttir, organisti og
söngstjóri við Raufarhafnarkirkju, og undirrituð við
Garðskiikju og Skinnastaðakirikju. — Hefur hún einnig
eftirlit með kirkjusöng í N.-Þing. prófastsdæmi.
Kirkjukórarnnr voru stofnaðir á árunnum 1944—53,
og hafa starfað sumir nær óslitið síðan. Þeir hafa sungið
við messur, haft samsöngva, sungið á skemtunum, er til
þeirra hefur verið leitað o. s. frv.
Kirkjukórasamband N.-Þing.-prófastsdæmis var stofnað
sumarið 1950, og varð því tíu ára á sl. sumri. Fjögur söng-
mót hefur Sambandið haldið, það fyista á Lundi í Axar-
firði 1952. Tóku þátt í því fjórir kórar: Frá Sauðaness-,
Snartastaða-, Skinnastaðar og Garðskirkjum. Söng hver
kór fyrst nokkur lög, en svo allir kórar saman. Næsta mót
var haldið í Lundi vorið 1955 með líku sniði. Tóku þessir
sömu kórar þátt í því og einnig kirkjukór Raufarhafnar.
Hafði Eyþór Stefánsson, söngkennari frá Sauðárkróki,
ferðast áður milli kóranna, æft með þeim sameiginlegu
lögin, og stjórnaði hann söngnum, er allir kórarnir sungu
saman. Var það ógleymanleg stund. Áður hafði lxver kór
sungið undir stjórn síns söngstjóra.
Þriðja mótið var haldið á Raufarhöfn 1957. Tóku þrír
kórar þátt í því, Skinnastaðar-, Garðs- og Raufarhafnar.
Kjartan Jóhannesson frá Stóra-Niipi fór þá á milli kór-