Melkorka - 01.09.1960, Blaðsíða 20
’
mm
Fyrsti kvenforsætisráðherra i heimí
Frú Sirimavo Bandaranaike hefur hlotnazt sú virðing
aö verða fyrsti kvenforsætisráðherra í heiminum. Hún
er ekkja sjálfstæðisleiðtoga Ceylonsbúa sem var myrtur
í september 1959. Hún virðist hafa eitthvað af skap-
lyndi Ólafar Loftsdóttur ríku því í stað þess að gráta
mann sinn safnaði hún liði í kosningabaráttu gegn
pólitískum andstæðingum með þeim ágætum að flokkur
manns hennar vann glæsilegan kosningasigur í júlímán-
uði.
Ceylon hefur lotið nýlendustjórn öldum saman, síðast
Englendingum. 19-18 var lýst yfir sjálfstæði eyjarinnar
en stéttarmunur er mikill og kjör almennings bágborin.
En mikill framfarahugur hefur gripið þjóðina síðan
hiín fckk fullveldi sitt og ráðizt hefur verið í á seinni
árum stórkostlegar verklegar framkvæmdir. Þjóðin telur
um 8 milljón íhúa, en á blómaskeiði hennar fyrir 2000
árum voru íbúarnir um -15 milljónir og þá blómguðust
einstæðar bókmenntir og listir hjá þessnm eylandsbú-
um og svo var gróðursæhiin mikil, og er enn á þessari
fögrti eyju að skrifaðar hafa verið ótal bækur til að
sanna að þar hafi aldingarðurinn Eden verið. Te og
kókoshnetur eru aðalútflutningsvara, cn hinar víðáttu-
tniklu teekrur eru þó ennþá að mestu leyti í höndum
útlendinga. Konur láta mikið til sín taka í cfnalegri
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og Sirimavo Bandara-
naike sýnir að ceylonskar konur hafa hugrekki og skap
að berjast fyrir þjóð sína. p y
Eftir lestur Melkorku
FrelsiÖ oss veitir hinn fegursta arf
svo fjarlœgan ancllausu striti.
Melkorku þakka ég mikilvœgt starf
hún mcclir af þekkingu og viti.
Lilja Björnsdóttir
60
MELKORK \