Skutull - 17.10.1947, Blaðsíða 2
2
SKUTULL
r-----------------——
SKUTULL
VIKUBLAÐ
Útgefandi:
Alþýðuflokkurinn á Isafirði.
Ábyrgðarmaður:
Helgi Hannesson
Urðarveg 6, Isafirði — Sími 216
Afgreiðslumaður:
Guðmundur Bjarnason
Alþýðuhúsinu, Isaf. — Sími 202
Innheimtumaður:
Jónas Tómasson
Hafnarstræti 2, Isafirði
Símar 123 og 205
-------------------------
Þingmálafundur
Fimmtudaginn 25. f. m. hélt
Finnur Jónsson almennan
þingmálafund i Alþýðuhúsinu.
Fundurinn var vel sóttur. —
Fundarstjóri var Guðmundur
G. Kristj ánsson.
Þingmaðurinn gerði grein
fyrir ýmsum þingmálum og
ræddi sérstaklega þau vanda-
mál, sem nú eru efst á baugi
og úrlausnar bíða. Finnur gaf
fundarmönnum glöggt yfirlit
yfir fjárhags- og viðskiptamál
þjóðarinnar, sýndi með ljósum
rökum fram á öngþveitið í
þeim málum svo og í afurða-
sölumálunum, og benti einnig
á þá aðkallandi nauðsyn, sem
er á skjótri og giftusamlegri
lausn þeirra mála.
Finnur Jónsson hrakti lið
fyrir lið hinn taumlausa og á-
byrgðarlausa blekkingavaðal
kommúnistaflokksins í þessum
málum og sýndi fram á hvern-
ig þeir gegn betri vitund reyna
að afvegaleiða alþýðu landsins
með rakalausu þvaðri sínu um
þessi aðkallandi vandamál.
óvæntur liðsauki barzt Finni
Jónssyni á fundinn, sem leiddi
fundarmönnum glögglega fyr-
ir sjónir, að allar staðhæfingar
Finns, hvað blekkingar og
ráðleysisfálm kommúnista-
flokksins snertir, væru sann-
leikanum samkvæmar í smáu
og stóru og á traustum rökum
reistar.
Sá, sem liðsaukann veitti var
Haukur Helgason, fyrrverandi
viðskiptaráðsmaður. Það skal
fúslega fram tekið, að þessi ó-
vænti liðsauki Hauks Helga-
sonar við réttan málstað, var
veittur án vitundar hans og
vilja, og stafaði eingöngu af
getuleysi og ófimlegri frammi-
stöðu þessa uppflosnaða ævin-
týramanns, sem enn einu sinni
ætlaði að villa um fyrir Isfirð-
ingum.
I klukkustundarræðu óð
Haukur Helgason blekkingar-
elginn og endursagði þar rang-
færslur og ósannindi Þjóðvilj-
ans og fléttaði inn í mál sitt
hin venjulegu hálfyrði komm-
únista um menn og flokka.
En eins og fyrr segir, var
málflutningurinn manninum
sízt burðugri og snerust vopn-
in i hendi Hauks gegn þeim
málstað og flokki, sem hann
vildi vinna gagn, ogmáþvimeð
sanni segja, að margt fer öðru-
vísi en ætlað er.
Ymsum, sem á hlýddu, flaug
í hug, að sæmra hefði Hauki
verið að sitj a heima og láta sig
dreyma horfna sæludaga við-
skiptaráðsdýrðarinnar og öll
þau hnoss, sem henni voru
samfara, en að láta ímyndað
atgerfi og manndóm hlaupa
með sig í gönur.
Þegar Finnur Jónsson svar-
aði ræðu Hauks og hrakti full-
yrðingar hans orði til orðs og
sýndi fram á fláttskap, rang-
færslur og blekkingar Hauks
og annara kommúnista í um-
ræddum málum, varð Haukur
lágur í sessi, enda fundu þá
margir til meðaumkunar með
honum.
Ekki var laust við að kj ökur-
hljóð væri í rödd „hetjunnar“,
er hún tók til máls á ný, enda
var nú orðaflaumurinn bæði
minni og meira í hóf stillt. Að-
spurður var hann neyddur til
að viðurkenna eitt og annað,
sem kommúnistar hafa hingað
til ekki viljað játa, enda sann-
aðist hið fornkveðna, að sök
bítur sekan, því þessi fyrrver-
andi viðskiptaráðsmaður veit
hvernig bæði hann og ýmsir
flokksbræður hans stýrðu f j ár-
hagsmálefnum þjóðarinnar,
meðan þeir sátu við stjórnvöl-
inn, og að nú sýpur þjóðin
seyðið af þeirri óstjórn.
Fundurinn stóð til miðnættis
og fór í alla staði líið bezta
fram.
ALDURSKIRTEINI
Barnaverndar Isafjarðar eru
afgreidd í Túngötu 1 (kjallara-
dyr) mánudaga kl. 8—9 síð-
degis.
BIÖ ALÞYÐUHÚSSINS
sýnir:
Laugard. og sunnud. kl. 9:
Sonur Hróa Hattar
(The Bandit of Sherwood
Forest).
Æfintýraleg mynd í eðli-
legum litum eftir skáldsögu
Castetons: „Son of Robin-
Hood“.
Aðalhlutverk:
Cornel Wilde
Anita Louise
Sunnudag kl. 5:
Dagbókin hennar
Barnasýning. Síðasta sinn.
Mánudag kl. 9:
Nótt í paradís
Síðasta sinn.
Get tekið nokkra nemend-
ur í ensku, dönsku og ís-
lenzku.
Ingibjörg Magnúsdóttir
Pólgötu 5.
R,
. úgur er meðal hollustu
næringarefna. —Gefið börn-
um yðar, og etið sj álf, meira
af rúgbrauði.
Reynið rúgbrauð frá Bök-
unarfélagi Isfirðinga.
Ekkert brauðgerðarhús á
Vesturlandi framleiðir nú
meira af þessari brauðteg-
und en Bökunarfélagið.
Bæði seydd og óseydd.
Ngtízku tæki til brauðgerðar
Prentstofan Isrún h.f.
i--------------------------—~—'— ------
ÞAKKARÁVARP
Hér með þakka ég vinum mínum og kunningjum, sem
gerðu mér ógleymanlegan 8. október 1947 í tilefni af
70 ára afmælisdegi mínum. Sérstaklega þakka ég Dúdda
og mínum nánustu vinum ásamt húsfólki mínu.
Guð blessi ykkur öll nær og fjær.
Betúel Jón Friðriksson.
-—---------—------^ r ^ ^ --->
Verðbréf.
Höfum til sölu nokkur ríkistryggð verðbréf. Allt 5 þús-
und króna bréf. Vextir 5%.
Allar nánari upplýsingar gefur:
SALA 0G SAMNINGAR
Sölfhólsgötu 14 — Reykjavík — Sími 6916
Tilkynning
frá umboðsmanni
Brunabótafélags íslands, ísafirði.
Frá og með 15. okt. hefst innheimta brunabótagj alda fyrir
gjaldárið 1947—1948 og er veitt móttaka daglega frá ld. 4—7 á
skrifstofu minni, Brunngötu 16.
Athygli lausafjártryggjenda skal sérstaklega vakin á því, að
ef ekki er greitt iðgjaldið fyrir 15. nóvember 1947 er tryggingar-
skírteinið fallið úr gildi. Er þvi nauðsynlegt að greiða gjöldin
fyrir þann tíma.
Isafirði, 14. okt. 1947.
Hrefna Bjarnadóttir
Umboðsmaður Brunabótafélags Islands.
AÐVÖRUN.
Sjúkrasamlag Isafjarðar minnir á, að öll iðgjöld fyrir
yfirstandandi ár ber að greiða að fullu fyrir lok þessa
mánaðar. Eftir þann tíma verða þau afhent til lögtaks á
kostnað gjaldenda.
Vanskil á iðgjaldagreiðslum varða missi réttinda til
sjúkrahjálpar hjá Almannatryggingum á árinu 1948.
Sjúkrasandag ísafjarðar.