Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Blaðsíða 12

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2001, Blaðsíða 12
Anna Lára, Bryndís, Bára, frænka mín og Lalli Blöndal hafa í 33 ár ferðast frá rútu á Ketilásinn og komið víða við Þetta byrjaði allt með Selmernum! -segir Björn Birgisson höfundur lagsins Gerðu mér nú greiða og reyndu að komast að pví hjú Bjössa Birgis hvernig j)jóðsöngur Sigl- firðinga varð til, sagði mœtur maður við Gunn- ar Trausta. Ekki jiurfti að biðja hann tvisvar. Lagið um hana Ónnu Lúru, Bryndísi, Báru, frœnku mína og Lalla Blöndal hefur á 33 árum sungið sig inn í þjóðarsálina þó svo að við Sigl- firðingar teljum okkur hafa á því eignarrétt. Og með réttu. Ég tók hús á höfundinum Birni Birg- issyni og Alfhildi Þormóðsdóttur konu hans til fjölda ára. -Þetta byrjaði allt með Selmernum, eins og maðurinn sagði, segir Bjössi og glottir. Ég fór minn fyrsta túr á togaran- um Hafliða sumarið 1964 þá 15 ára gamall og í framhaldi af því var ég tvo vetur í iðnskóla í Keflavík á árunum 1965-66 en þá var Bítlaæðið hafið. í Keflavík var þá vagga þessarar tónlistar á Islandi vegna nálægðarinnar við Kan- ann. Aður en ég byrjaði á sjónum hafði ég keypt mér stórt segulband sem ekki var algengt að unglingar ættu í þá daga. Þetta segulband varð svo til að ég var ma. fenginn til að taka upp fyrir fyrstu hljómsveit Magga Kjartans í Keflavík sem hét Strengir og í voru auk hans þeir Magnús og Jóhann. I framhaldi af þessu fékk ég mér Selmergítar og með hann fór ég um borð í Hafliða SI 2 árið 1967. Þá kunni ég tvö gítargrip, C og G. Og ég var á Hafliða með hléum fram til 1969. Um borð voru miklir jaxlar: Refurinn, Palli Gull, Svanur Páls og Gummi Páls, Beggólín og Svenni Björns, Gísli Jóns, Jón E og Óli Jói, Matti Jóh. og Gunni Geira ofl. Þarna um borð árið 1968 var líka óborganleg- ur karakter sem margir muna, Valli í Bíó, sem hafði marga þöruna sopið og kallaði ekki allt ömmu sína. Bíóstjórinn eins og hann var kallaður raulaði oft fyrir munni sér úti á dekki millikaflann úr lag- inu Angelina sem Louis Prima gerði frægt um 1957, en í honum koma fyrir hending- arnar: Chella lone masse mone mama mia maro belle..!! Þetta var kveikjan að Önnu Láru ásamt raggítaktinum í Obla di obla da af hvíta albúmi Bítlanna sem kom út þetta árið. Þetta haust var ég síðan staddur í rútu á leiðinni inn á Ketilás á dansleik og er með gítarinn í fanginu eins og venju- lega og er að gutla og syngja. Fyrir framan mig situr Jósep Lárusson Blön- dal. Þá kemur fyrsta hendingin í bunu út úr mér í stað Chella lone masse mone: Anna Lára, Bryndís, Bára, frœnka mín og Lalli Blöndai og í framhaldi af því : Ó. Lalli ég œtla að fá mér blað, en Lárus var bóka og blaðasali. Ó, Lalli, ég œtla að lesa það. Ó, Lalli, ég cetla að fá mér bók og skreppa yfir til Höllu og fá mér eina kók og skreppa yfir til Höllu og fá mér eina kók. Eina kók frá Bigga Run, eina kók frá Bigga Run. Ekki var að sökum að spyrja allt varð vitlaust í rútunni. Þessi fyrripartur var svo sunginn það sem eftir var ferðar- innar. Lagið hljómaði svo um veturinn í öll- um partýum sem ég kom í og þau voru ekki fá!. Þennan vetur verður svo seinnipartur- inn til: ...og ef þig skyldi einhverntíma vanta eitthvað til að Iesa, „þá komdu bara ,vinur, og ég skal redda því“ en þarna hermdi ég eft- ir nefmæltri röddinni hans Lalla, og síðan framhaldið um glæparitið um hann Pésa. Þá fannst mér lagið fullbúið, klárt og ekki yrði gert betur. En til er þriðja vísan sem ég setti aldrei í umferð en hún er svona: Mót Bíóbar þar Baddi var að kaupa fisk af Bödda og Jósa vinsœlt var að versla í þeirra fiskibúð! Hvernig finnst þér kálfakjötið, kartöflur og karrísósa, kúamjólk og kleinur og kanel oná snúð! Lagið um hana Önnu Láru er búið að ferðast um allt landið og ári eftir að það er fullgert á Siglufirði gefa B.G. og Ingi- björg út lagið Sólkinsdagar, sem Jónas Friðrik gerði textann við en höfundur sagður ókunnur. Þarna er komin hún Anna Lára mín. Við Stjáni Elíasar höfðum verið á sjó austur á Eskifirði veturinn 1968-69. Þegar við komum heim um vorið stofn- uðum við hjómsveit sem hlaut nafnið Enterprize en aðrir meðlimir voru þeir Gunni Binnu, Jói Skarp og Gummi Ing- ólfs. Þessi hljómsveit hafði þann metn- að ein allra hljómsveita íslenskra að hún samdi sérstakt kynning- arlag í ætt við Monkees: Here comes the group of name Enterprize. We tell you the truth we come from the sky!! Þessi hljómsveit (án Gunnars sem farinn var á Hafliða) kom fram í fyrsta skiptið á Ketilásn- um um sumarið í pásu hjá siglfirsku hljómsveit- inni MAX. Við gerðum gífurlega lukku og þarna var Anna Lára frumflutt á sviði í fyrsta sinn. Við vorum klappaðir upp aft- ur og aftur. Eftir þessa velgengni leigðum við Sjálfstæðishúsið á Siglu- firði og spiluðum þar fyrir fullu húsi helgi eftir

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.