Vesturland

Árgangur

Vesturland - 08.01.1955, Blaðsíða 3

Vesturland - 08.01.1955, Blaðsíða 3
VESTURLAND 3 Aðalsteinn Jónasson. Minningarorð Hinn 27. nóvember s.l. lézt að heimili sínu Laugabóli í Ögur- hreppi Aðalsteinn Jónasson bóndi á 67. aldursári og var til moldar borinn að ögri þann 10. des. Séra Sigurður Kristjánsson prestur á Isafirði jarðsöng hann. Aðalsteinn var fæddur 24. apríl árið 1888 að Birnustöðum í Laug- ardal, sonur sæmdarhjónanna Jónasar Bjarnasonar og Rebekku Egilsdóttur, er þar bjuggu í mörg ár. Ólst Aðalsteinn upp í foreldra- húsum til fullorðinsára. Vandist hann strax í æsku allri algengri sveitavinnu á heimili foreldra sinna, þar sem iðjusemi, reglu- semi og sparsemi skipuðu önd- vegi. 1 fardögum árið 1922 fluttist Aðalsteinn að Laugabóli og byrj- aði þar búskap. Bjó hann þar síðan til æviloka. Búið var ekki stórt til að byrja með, 51 kind og eitt hross. Fyrstu 12 árin bjó hann með unnustu sinni Ólöfu Ólafsdóttur, sem var ættuð úr Grunnavíkurhreppi. Bjuggu þau saman ógift og eignuðust 6 dætur. Tvær þeirra dóu á barnsaldri en fjórar lifa föður sinn. Ragna og Friðrikka Sigríður báðar til heim- ilis á Laugabóli, ógiftar. Rebekka gift í Hafnarfirði og Sigríður gift tii heimilis á ísafirði. Allar eru þær systur dugnaðar- og ekki verður sniðgengin. Engu að síður þurfum við á nýjum at- vinnutækjum að halda, meiri framleiðslu, varanlegri atvinnu og bættri aðstöðu á marga vegu. En ég leyfi mér að staðhæfa: Að þessu er unnið markvisst og af fullri festu undir for- ystu Sjálfstæðismanna. Stefn- an í rafmagnsniálunum er mörkuð og fé tryggt til fram- kvæmdanna. Hin nýju vest- firzku raforkuver leggja grund- völl að miklum framförum, tryggari atvinnurekstri, aukn- um lífsþægindum og bjartari framtíð. Stórfelldar samgöngu- bætur eru framkvæmdar í hér- uðunum og unnið að útvegun fjármagns til kaupa á þeim atvinnutækjum, sem byggðar- lögin vantar. Þetta fjármagn mun fást og atvinnutækin munu koma, e.t.v. ekki öll í einu, en þau munu koma og mynda nauðsynlegan grund- völl undir framtíðarfarsæld fólksins hér vestra, við sjó og í sveit. Að svo mæltu leyfi ég mér að árna öllu Sjálfstæðisfólki á Vestfjörðum og öllum Vest- firðingum giftudrjúgs komandi árs. Vigur, 28. des. 1954 Sigurður Bjarnason. mestu myndarkonur. Á árinu 1934 varð Aðalsteinn fyrir þeirri þungu sorg að missa unnustu sína, sem þá dó úr tæringu heima á Laugabóli frá fjórum ungum dætrum þeirra. Áfall þetta bar hann með mikilli karlmennsku, þótt fram undan blöstu við erfið- leikar hvað snerti uppeldi barn- anna, sem voru nú svipt um- hyggju móðurinnar, sem uppeldi barnanna hvílir jafnan mest á. Búskapinn stundaði Aðalsteinn á Laugabóli frá fyrstu tíð með miklum dugnaði og fyrirhyggju. Nýtt íbúðarhús úr steinsteypu byggði hann á jörðinni 1926, í stað gamla bæjarins. Bætti hann jörðina með túnasléttum, girðing- um og endurbótum á penings- húsum. Laugabólið hafði hann keypt á fyrstu búskaparárum sín- um og þar með gjörst sjálfseign- arbóndi. Aðalsteinn var glöggskyggn á landkosti í Laugardal, enda dal- urinn grösugur og fallegur yfir að líta. Allstórt veiðivatn með gnótt af silungi og laxi, í vexti á seinni árum, prýðir þarna byggð- ina og skapar þeim er þarna búa aukin skilyrði til góðrar af- komu. Við suðurenda vatnsins stendur Laugabólsbærinn og ber hátt á, svo að útsýn þaðán yfir dalinn, vatnið og út á Isafjarðar- djúp er sérstaklega falleg og til- komumikil. Já, þarna var það, sem Aðalsteinn varð einn sjálf- stæðasti og traustasti bóndinn í ögurhreppi, þótt stundum blési á móti á lífsleiðinni. Þarna í dalnum höfðu faðir hans og afi búið allan sinn bú- skap og farnast vel. Tvö eftirlif- andi systkini Aðalsteins eru og enn búandi í Laugardal, þau Þor- björg í Hagakoti og Jón á Birnu- stöðum. Að einlæg og sönn átt- hagaást hafi að nokkru leyti ráð- ið um stöðuglyndi þessa fólks á þessum slóðum efast ég ekki um. Hvað hinsvegar nú á tímum er efst á baugi í þessum efnum er alþjóð kunnugt um. Um langt árabil var Aðalsteinn bóndi fjárflestur allra bænda í hreppnum. Fé hans var að jafnaði mjög vænt og afurðir fjárins ár- vissar hvernig svo sem áraði. Efalaust réði þar miklu um natin og umhyggjusöm hirðing fjárins. Til þeirra hluta var ekki höndum kastað. Hitt vissu líka sveitungar hans, að aldrei brast hann fóður fyrir skepnur sínar, en átti jafn- an stórkostlegar heyfymingar á vori hverju. Ég minnist er ég á sextugsaf- mæli hans gekk með honum skammt frá bænum á Laugabóli, að heykumbli er stóð þar ósnert. „Þarna átt þú góðan stabba“, varð mér að orði. „Ójá, manni MINNEVGARORÐ: Arnfríöur Þorkelsdðttir. Ekkjan Arnfríður Þorkelsdóttir andaðist 7. ágúst s.l. að Meiri- Bakka í Skálavík í Hólshreppi. Arnfríður var fædd 16. janúar 1874 að Saurum í Álftafirði. For- eldrar hennar voru Kristín Þor- steinsdóttir og Þorkell Magnús- son. Arnfríður ólst upp hjá foreldr- um sínum til átta ára aldurs. Fluttist hún þá til föðurbróður síns, Guðna Magnússonar bónda að Brekku í Langadal i Naut- eyrarhreppi, og var hjá honum til 17 ára aldurs í góðu yfirlæti. Réðist Arnfríður þá í vistir, fyrst að Kirkjubóli í Langadal, og síðar að Laugabóli til Jóns Halldórsson- ar og Guðrúnar Þórðardóttur, sem þar höfðu stórbú og margt hjóna. Á Laugabóli var Arnfríður í átta ár, og líkaði vistin vel, þótt mikið væri að gera og vinnutíminn oft langur. Frá Laugabóli fluttist Arnfríð- ur til Hnífsdals, réðist sem vinnu- kona til hjónanna Símoníu Krist- jánsdóttur og Jóns Pálssonar skipstjóra. Árið 1904 giftist Arnfríður Páli Jósúasyni skipstjóra og útgerðar- manni. Búsettust þau á ísafirði. Þau hjón eignuðust sex börn. Eru þessi fjögur á lífi: Jóhann, skipstjóri í Reykjavík; Sigríður, gift Jóhanni Pálssyni á Höfða í Grunnavíkurhreppi; Páll, bóndi á Meiri-Bakka, ókvæntur; Jakob, sjómaður á Patreksfirði, kvæntur Fjólu Jónsdóttur. líður betur að vita af þessu ó- eyddu eftir veturinn" var svarið. Þannig hugsaði þessi bóndi, sem réttilega áleit heyleysi eitt mesta bölið, sem hent gæti í búskapn- um. Aðalsteinn var að eðlisfari hlé- drægur maður. Hispurslaus og hreinskilinn í framkomu og lét ógjarnan af skoðun þeirri er hann hafði á mönnum og málefnum. Orðheldinn og ábyggilegur í öll- um viðskiptum var hann og gein ekki við hverskonar nýung- um en mat mikils fornar dyggðir, svo sem iðjusemi, nýtni, reglu- semi og sparsemi. Síðustu æviárin var Aðalsteinn heilsutæpur mjög, og féll þá þungt að geta ekki gengið að vinnu sem aðrir. Fyrir frábæran dugnað og um- hyggjusemi dætra hans, sem heima voru, tókst að halda bú- skapnum í góðu horfi án þess að saman gengi búið. Við fráfall hans hafa sveitung- ar hans orðið á bak að sjá dug- legum og nýtum bónda, sem hlífði sér ekki við skyldustörfunum. Vigur 11. des. 1954 Bjemi Sigurðsson. Einnig ólu þau Arnfríður og Páll upp sex fósturböm, að meira eða minna leyti: Jón Jóhannes- son, nú bónda í Hafnardal í Naut- eyrarhreppi; Gunnar Sigtryggs- son, nú rafvirkja í Bolungavík, systurson Arnfríðar; Arnfríði Aradóttur; Sigurð Pálsson; Salo- me Guðjónsdóttur og Sumarliða Kristjánsson (til átta ára aldurs). Árið 1911 fluttu þau Arnfríður og Páll frá Isafirði að Meiri- Bakka og hófu þar búskap, og bjuggu þar síðan til æviloka. Til- efni flutnings þeirra frá Isafirði var það, að þau misstu þar ung- an son á þann hátt, að hann var að leika sér með öðrum börnum á sjóvarnargarði umhverfis íbúð- arhús þeirra; tók drenginn þá brim svo hann drukknáði. Festi hvorugt þeirra hjóna yndi á ísa- firði eftir þennan atburð, þótt afkoma þeirra væri í betra lagi, enda var Páll heitinn mikill að- dráttarmaður. Hafði hann útgerð nokkra og var í ýmsum fram- kvæmdum. Þau Páll og Arnfríður keyptu jörðina Meiri-Bakka nokkru eftir að þau fluttust þangað. Bæði voru mjög samhent um búskapinn og unnu hörðum höndum. Með dugn- aði og sparsemi tókst þeim að eignast jörðina og sæmilega á- höfn. Fyrstu búskaparárin stund- aði Páll jafnan sjó að vorinu, og oft einnig að haustinu. Komu bú- verkin, úti og inni, þá jafnan mest á Arnfríði og krakkana, sem öll voru dugleg og vöndust snemma að taka til hendi eftir því sem með þurfti. Bæði voru þau Arnfríður og Páll vel gefin. Hann var fjöl- fróður og viðlesinn með leitandi gáfur. Hún hafði lesið minna og engrar uppfræðslu notið umfram fermingarlærdóm. Gáfur hennar voru traustar og farsælar á þeim sviðum er henni láu hjarta næst. Arnfríður var ágæt móðir og kona; gerði engan mun barna sinna og fósturbarna. Öll börnin áttu í henni víst athvarf. Manni sínum var hún trúr og traustur félagi og samstarfsmaður. Starf hennar var mikið og farsælt, og jafnan unnið af sérstakri skyldu- rækni. Þau Arnfríður og Páll bjuggu fyrst á hálfri jörðinni Meiri- Bakka. Keyptu þau síðan alla jörðina er hálflendan losnaði. Jafnframt húsuðu þau jörðina að öllu leyti, græddu út tún og engi og ræktuðu nokkuð að nýju. Eftir að Páll andaðist 9. maí 1946, hélt Arnfríður áfram búi að Meiri-Bakka með forsjón og aðstoð Páls sonar síns og Sigurð- ar fóstursonar síns. Var jafnan haldið áfram ræktun og húsabót- um eftir því sem ástæður leyfðu. Arnfríður var jarðsett að Hóli í Bolungavík 14. ágúst s.l. Arngr.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.