Vesturland - 27.06.1958, Blaðsíða 3
VESTURLAND
3
Tónlistarskóli Isafjarðar:
Árangursrfkt tín ára menningarstarf.
Ragnar H. Ragnar, skólastjóri.
Tónlistarskóla Isafjarðar var
slitið í Alþýðuhúsinu 31. f.m.
Dagana 28. og 29. maí voru vor-
hljómleikar nemenda í Alþýðuhús-
inu við mikla aðsókn og til ánægju
fyrir alla, er þá sóttu. Á hljómleik-
um þessum var meiri fjölbreytni
en áður. í fyrsta skipti kom nú
fram söngkór, sem skólinn hefur
stofnað og Jónas Tómasson stjórn-
ar, þá var blokkflautuleikur, lúðra-
sveit skólans lék, nemendur léku á
blásturshljóðfæri og orgel. En
flestir nemendur stunda nám i
píanóleik.
1 vetur voru 56 nemendur í skól-
anum, þar af 34 í píanóleik. í
lúðrasveitinni eru 12 og stjórnar
Harry He'rlufsen henni. Þá var í
fyrsta skipti haft námskeið í
blokkflautuleik og tóku þátt í því
36 börn, stjórnandi þess var Hjört-
ur Jónsson.
Skólaslitaathöfnin 31. maí hófst
með því, að lúðrasveit skólans lék
nokkur lög. Síðan flutti skólastjór-
inn, Ragnar H. Ragnar, ávarp,
nokkrir nemendur léku einleik á
píanó og söngflokkur telpna söng
undir stjórn Jónasar Tómassonar.
Þá fór fram afhending verð-
launa, sem öll voru gefin af ís-
firzkum fyrirtækjum, og hlutu
þau þessir nemendur: Messíana
Marzellíusdóttir fyrir píanóleik,
Guðrún Hólmfríður Kristjánsdótt-
ir, Þorbjörg Kjartansdóttir, Sig-
rún Guðmundsdóttir, Kristjana S.
Kjartansdóttir og Ásdís Ásbergs-
dóttir, allar fyrir tónfræði.
Því næst sagði skólastjóri skól-
anum slitið.
Þá var minnst 10 ára afmælis
skólans og stjórnaði Kristján
Tryggvason, formaður skólanefnd--
ar, þeirri athöfn.
Ræður fluttu: Birgir Finnsson,
forseti bæjarstjórnar, Björgvin
Sighvatsson, kennari, formaður
fræðsluráðs, Marías Þ. Guðmunds-
son og Matthías Bjarnason, sem
afhenti skólastjóra peningagjöf
frá nokkrum bæjarbúum að upp-
hæð kr. 15.650,00 — Auk þess bár-
ust skólanum nokkrar aðrar gjafir
og margar heillaóskir. Allir ræðu-
menn rómuðu mjög starf skólans
og þökkuðu skólastjóranum, Ragn-
ari H. Ragnar fyrir framúrskar-
andi dugnað og áhuga, er hann
hefur sýnt með starfi sínu fyrir
skólann og tónlistarlíf í þessum bæ
á þeim 10 árum, sem hann hefur
verið hér búsettur. Þá kom fram
sérstakt þakklæti til skólastjóra-
frúarinnar, Sigríðar Ragnar, fyrir
þann mikla áhuga, sem hún hefur
sýnt skólanum, og staðið við hlið
manns síns um að efla starfsemi
skólans. En á heimili þeirra, sem
jafnframt er aðalbækistöð skólans,
hefur mikil kennsla farið fram og
flestar samæfingar nemenda. Þá
voru færðar þakkir öðrum kennur-
um fyrir mjög góð störf, en þeir
eru auk skólastjóra: Jónas Tómas-
son, sem kennt hefur frá byrjun,
og var ásamt Halldóri heitnum
Halldórssyni bankastjóra, einn að-
al hvatamaður að stofnun skólans.
Elísabet Kristjánsdóttir hefur
kennt frá 1951, Guðmundur Árna-
son frá 1952, Harry Herlufsen
hefur starfað við skólann lengi, og
stöðugt síðustu tvö árin og Hjört-
ur Jónsson hefur kennt í vetur á
blokkflautur.
Kristján Tryggvason þakkaði
ræðumönnum hlý orð og gjafir,
sem skólanum barst og flutti síðan
ræðu um störf skólans og rakti
sögu hans.
1 Tónlistarskóla ísafjarðar hafa
210 nemendur stundað nám frá
stofnun hans og margir verið í
nokkur ár.
Starf Tónlistarskólans hefur
sannfært alla ísfirðinga um það,
að starfsemi hans héfur aukið mik-
ið menningarlíf bæjarbúa og tón-
listarinnar er notið á fjölda heim-
ila í bænum í mun ríkara mæli en
áður. Börnin sem stunda nám í
þessum skóla hafa fært með sér
heim áhuga fyrir tónlistinni. Það
er þetta sem hefur gert Tónlistar-
skóla ísafjarðar að sannkölluðu
óskabarni bæjarbúa.
Tónlistarskólinn er rekinn af
Tónlistarfélagi Isafjarðar, en for-
maður þess er Sigurður Jónsson,
prentsmiðjustjóri.
fiöðnr vinabæjafuliM
heimsækir Isafjörð.
Einn hinna erlendu blaðamanna,
sem sóttu Norræna blaðamanna-
mótið í Reykjavík, var Carl Hilmer
Johanson aðalritstjóri frá Lin-
köping, sem er vinabær ísaf jarðar
í Svíþjóð. Carl Hilmer brá sér
hingað til Isafjarðar sunnudaginn
15. þ.m. og heimsótti hér ísfirzka
vini sína, sem kynntust honum á
vinabæjamótunum í Roskilde og
Linköping á fyrra ári. Hann skoð-
aði bæinn og nágrennið þær fáu
klukkustundir sem hann dvaldi
hér.
Carl Hilmer Johanson er mikill
áhugamaður norrænnar samvinnu
og hefur góðan vilja á að kynnast
íslandi og íslenzku þjóðlífi. Hann
er aðalritstjóri annars stærsta dag-
blaðs Linköpingborgar, östgöten,
og á sæti í bæjarstjórninni og er
annar varaforseti hennar.
Vinum hans hér var mikil ánægja
að komu hans hingað, en því mið-
ur var viðdvölin alltof stutt.
Búningsklefar Í.B.I.
teknir i notknn.
Nokkur undanfarin ár hefur ver-
ið unnið að því að koma upp bún-
ingsklefum við íþróttavöllinn. Hef-
ur framkvæmdum miðað fremur
hægt vegna f járskorts, en nú d vor
var unniö af krafti af íþrótta-
mönnum, við að leggja síðustu
hönd að verkinu. Friðrik Bjarna-
son, málarameistari, lánaði áhöld
og stjórnaði verkinu, og var húsið
tekið í notkun um hvítasunnuna.
Hefur aðstaða íþróttamanna mjög
batnað við að fá húsið.