30 og náði hún eigi minnst til uppeldis og uppfræðslu. Margt var gert, sem lítil forsjá var í, pótt sumt yrði til bóta. Klaustrin voru af tekin og par með var al- pýða svipt peirri uppfræðslu og hæli, sem hún svo lengi hafði haft par, en ekkert var sett í staðinn fyrir pau. Hin ytri kjör pjóðarinnar breyttust mjög; konungsvald kom í stað klerkavalds, og konungsvaldið einokaði verzl- unina, og svipti með pví ísland hinu fyrsta skilyrði fyrir allri menningu; pað svipti fólkið skilyrðunum fyr- ir að bjarga sjer, og eptir pað gat almenningur eigi haft gott viðurværi nje aðbúnað eða húsakynni. Allur arður landsins fór til annara landa, ásamt hinu mikla fje, sem galzt burtu af klausturjörðunum, sem konung- ur hafði hrifsað undir sig við siðaskiptin. Vorum lög- um var traðkað, en önnur sett í staðinn, sem voru hörð og ómannúðleg. Hvers konar kúgun var í frammi höfð, svo að mestallur dugur og manndómur dvínaði og ó- sjálfbjörgunar hugsunarháttur kom inn hjá almenningi. Hjátrú og hindurvitni urðu engu minni, en í katólsku; menn voru brenndir fyrir galdra og almenningur trúði, að draugar og apturgöngur færi Ijósum logum og að hver hóll væri byggður af álfum og öndum. Hin mesta harðneskja var höfð við börnin í uppeldinu; pau voru barin fyrir engar sakir og máttu varla leika sjer. Hin- ar gömlu, góðu ípróttir lögðust niður með öllu, og ó- frelsis og deyfðar blær lagðist yfir allan almenning. Á. pessu varð lítil breyting fyrri enn við byrjun pessarar aldar, að menn hjer sem annarstaðar vöknuðu til sjálfs- meðvitundar, og hinar nýju hugmyndir stjórnarbylting- arinnar færðust hingað og verzlunareinokuninni var Ijett af. Eptir siðabótina voru latínuskólar settir á báða biskupsstólana; var klerkum par veitt meiri menntun en áður hafði verið, svo pegar fram liðu stuudir komu