38 II. Kennaraskólarnir á Einnlandi eru tvenns konar: samansettir og aðskildir. Hinir samansettu hafa 2 deildir, eina fyrir karlmenn, aðra fyrir konur. í hverri þessara deilda fyrir sig fer kennslan fram í sjerstðkum herbergjum. Hinir aðskildu skólar eru stofnaðir, annaðhvort eingöngu fyrir karla eða konur. Hinn sami kennslu- grundvöllur gildir fyrir hvoratveggja skólana. Kennaraskólarnir eru byggðir þar, sem loptslag er hollt og landið er fagurt með stöðuvötnum og skógi, og íetíð svo nálægt smábæ, að þeir lærisveinar, sem ekki búa á kennaraskólanum, geti hindrunarlaust búið í bæn- um. Jyviiskylákennaraskóli Hggur í miðju landi, Sor- davalakennaraskóli austur í landi, Nýkarlabæjarkennara- skóli í vesturpartinum og Eykanesskennaraskóli suður í landi, sá skóli stendur í beinu sambandi við höfuðstað- inn Helsingjafoss, má fara þar á milli á stuttum tíma eptir járnbraut. Við hvern kennaraskóla, sem karlmenn eru á, er plöntugarður ásamt með akri, engi og skógi. Við hvern kennaraskóla er stofnaður barnaskóli eða æfingarskóli, barnagarður og ungbarnastofa. A öllum kennaraskólunum er heimavist (Internat). A hinum samsettu kennaraskólum eru optast 45 heima- sveinar og heimastúlkur jafnmargar, eru pví alls 90 heimavistir, en á hinum aðskildu kennaraskólum eru að eins 30 heimavistir; á þeim eru peir af 1 andsmönnum, sem mæla á sænsku, en þeir eru miklu færri en þeir, sem finnsku mæla. Auk heimasveina og heimastúlkna sækja kennaraskólann margir bæjarnemendur(Externer), eru þeir opt eins margir og heimanemendur, og stund- um fleiri. Loks eru nokkrir, sem sækja kennaraskól- ana, sem að eins hlusta á kennsluna, en ekki eru spurðir út úr kennslugreinunum, og álítast ekki fastir nemend-