39 ur, þeir eru kallaðir liospitantar. Ef einhver hospitanta óskar að ganga undir próf í einhverri kennslugrein, er honum leyft að gjöra það, hafi hann tekið þátt í þeirri kennslugrein gegnum allan skólann. Hospitantar eru fáir við kennaraskólana. Öllum, sem sækja kennara- skólana, er veitt ókeypis kennsla. Kennaraskólunum er skipt í 4 ársdeildir; eigi mega vera yfk 30 í hverri deild. J>eir, sem vilja fá inntöku á kennaraskólana, verða að hafa fengið þá undirbún- ingsfræðslu, sem veitt er í alþýðuskólum landsins, og eigi eru yngri nemendur teknir en 18 ára. Aldurstak- mark upp eptir er eigi sett, því í fyrstu deild eru opt menn um þrítugt. Jpegar nemandinn hefur staðizt inn- tökupróf, er hann tekinn inn í skólanu. Hið f^Tsta hálfa ár er að eins reynslutími, að honum liðnum á- kveður kennaraskólaráðið, hvort nemandinn er tekinn inn í skólann, sem fastur nemandi, eða honum er vísað frá. 1 skólaráðinu er forstöðumaður og forstöðukona skólans, ásamt með kennurum og kennslukonum. Hver heimanemandi sem ekki heíir frípláss, þarf að eins að borga 120 kr. fyrir fæði, þjónustu og húsaleigu um árið. Hinir fátækustu, en gáfuðustu nemendur fá heimavist, með því að það þykir skynsamlegast að rík- ið taki þá að sjer; hinir fá að minnsta kosti ókeypis kennslu. I 3. og 4. deild fá hinir fátækustu heima- nemendur frípláss. ]?eir nemendur sem eru í 4. deild búa jafnan ut- anskóla. I þeim bæjum sem eru í grend við kennara- skólann, er hægt að fá fæði og húsnæði með vægu verði svo eru líka veittar árlega 2500 kr. hverri deild karla og kvenna fyrir sig af hinum fátækustu bæjarnemend- um. fessu fje er úthlutað á hverjum ársfjórðungi og sá nemandi, sem vill verða aðnjótandi styrks af því, verður að hafa vottorð frá presti sínum um, að hann