41 öðrum alþýðuskólum en æskilegt hefur pótt, af peirri; ástæðu, að þeir sem inn voru teknir í skólana, eigi höfðu næga undirbúningsfræðslu. Nú þegar inntökuskilyrðin eru orðin pyngri, höfðu menn hetri von um góðan á- rangur og frjálsari hendur við kennsluna. J>að er peg- ar orðinn gleðilegur árangur, pegar litið er til þess, á hve náttúrlegan hátt og hve hlátt áfram nemendurnir (hæði piltar og stúlkur) Ijetu í ljósi skoðanir sínar, og hjeldu fyrirlestra bæði innbyrðis og á samkomum í á- heyrn allra kennara og nemenda. pað er lögð mjög mikil stund á að auka og bæta bókasöfn kennaraskólanna; til pess er árlega veitt fje. Bókasafn kennaraskólans í Jyvaskylá hafði hjer um.bil' 1400 bindi. Að öðru leyti er mjög vel sjeð um söfn og áhöld kennaraskólanna; alls konar verkfæri eru höfð- til hjálpar við kennsluna í efnafræði, eðlisfræði og líf- færafræði, svo líka jurtasöfn, steinasöfn, skorkvikinda- söfn, verkfæri til hjálpar við teiknikennsluna, myndir úr sögunni, náttúrufræði og landafræði eru par m. fi. I tveimnr fyrstu deildum kennaraskólans er veitt fræðsla í þeim fræðum, er kennd eru í skólanum, án pess nemendurnir fái neina praktiska tilsögn í að kenna sjálfir fyr en lítið eitt í 3. hekk. Nemendur 4. bekkjar, sem kallast kandídatar, bæði menn og konur, starfa næstum einungis í æfingaskólanum og harnagarðinum. í æfingaskólanum hefur hver kandídat sínar kennslu- greinir að kenna og svo mega peir til skiptis standa fyrir æfingu í skólanum, sem forstöðumenn eða forstöðu- konur, undir yfirumsjón kennara og kennslukvenna kennaraskólans. Auk pess eru lærimejrjarnar látnar sjá um börnin í barnahúsinu til skiptis. Á kennaraskólan- um hafa kandídatarnir allt að 2 tíma kennslu daglega í pví að fara rjetfc að kenna hinar sjerstöku kennslu- greinar. I öllum bekkjum kennaraskólans og barnaskól-