47 hlaupa og á vorin er hin mikla skilnaðarhátíð fyrir þá kandídata (menn og konur), sem fara burtu af skóian- um. A sumrin ganga nemendurnir skógargöngur, og til þess að safna plöntum. J>að er því allmikill hópur, þegar allir nemendumir fara á skemmtigöngur. Við Jyvaskylá kennaraskóia voru árið 1885 237 nemendur, og pó hefur fjölgað þar síðan. Nokkrir menn hafa látið það í ljósi, að lííið í þeim skólum, sem hefðu mörg heimapláss, yrði líkt því, sem er á hermannaskólum; en til þess að svo verði eigi, heldur Cygnæus því fram, að handiðnir, jarðyrkja og yfir höfuð öll iðjusemi og keppni sje bezt lagað til að koma í veg fyrir allt illt. Finnlands kennaraskólar hafa mjög vel tileinkað sjer þetta holla starfslíf. |>egar stofna átti hinn síðasta kennaraskóla áFinn- landi 1872, komu fram tillögur um að hafa eigiheima- vistir við skóiann, svo fyrir það yrði hægt að spara all- mikið fje. Út af þessu kom um sama tíma allmikil andmæli í blöðunum; þar var mjög haldið fram nauðsyn og notum, sem væri að heimavistunum, og að eigi yrði sparnaðurinn svo mikill, þótt þær væri ekki látnar vera. J>að var meðal annars tekið fram, að þegar um 200 ungir menn >og konur á ýmsu menntunarstigi eru látnir fiytja saman á einn stað, þá er það mjög áríð- andi, að vaka vel yfir og hafa nákvæmar gætur á at- ferli þeirra, bæði að því, er þá sjálfa snertir, heimili þeirra og þá sköia, sem þeir á síðan eiga að starfa við, sem kennarar og uppalendur. J>etta er hægast að gera við þá skóia, sem hafa heimavistir; niðurröðun og fyrir- komulag þeirra skóia innifela það í sjer, án þess nem- endurnir verði varir við. |>ví var einnig haldið fram, að við samsetta kennaraskóia væri heimavistin óhjá- sneiðanleg, ella myndi illt af hljótast. |>að var þó eiukum tekið fram, að ef hægt væri að byggja nokkuð