54 hluti úr mislitum pappír, myndir eru klipptar út og ýmsar limdar saman, allt eptir peim fyrirmyndum, sem börnin hafa; en til pess eru valdar myndir af dýrum, sem börnin pekkja, og blómstrum. ]?etta vekur eptir- tekt og nákvæmni hjá börnunum. Svo hafa börniu öskjur með leikfangi, korkstykkjum, bavmum og öðrum peim hlutum, sem ekkert kosta; úr pessu eru gjörðar myndir. Kennararnir gjöra líka smábyggingingar á faorðinu úr teningum, og öll börnin hafa teninga til að gjöra úr sömu eptirmyndir. farna læra börnin fyrst að skrifa með blýant og reikna frá 1 til 10, og að lesa lítið eitt; myndir eru sýndar til útskýringar almennum hlutum; börnin æfast enn fremur í söng og leikfimi. |>egar svo börnin koma í æfingaskólann, byrjar hin eiginlep-a kennsla í hinum sjerstöku uámsgreinum. Barnaskóla eða æfingaskóla kennaraskólans er skipt í 6 deildir, bæði fyrir drengi og stúlkur; námstíminn er par pví 6 ár. 1 penna skóla ganga börn af öllum stjettum. Æfingaskólinn er pá optast frumskóli eða alpýðuskóli peirrar byggðar, sem kennaraskólinn er í. Kennslan varir 56 tíma daglega, vanalega eru 3 stundir hafðar fyrir miðdegi og 23 eptir. Pegar börnin fara af skólanum, eru flest peirra 14 ára. Kandídatarnir hafa á hendi mestalla kennslu æfinga- skólans, karlmenn í drengjadeildinni, en konur í hinni. Sá kennari kennaraskólans, sem er forstöðumaður æf- ingaskólans, kennir par að eins fáeinar stundir á viku; sömuleiðis sú kennslukona, sem stendur fyrir stúlkna- deildinni, kennir par lítið; en að öðru leyti hafa for- stöðumaður og forstöðukona hið nauðsynlega eptirlit með æfingaskólanum, börnunum, skólaniðurröðun og kennsl- unni, hvort í sinni deild. Eins og fyr er getið, purfa kandídatarnir að vera til skiptis forstöðumenn skólans