55 undir umsjón kennara kennaraskólans, og bera pá á- byrgð bver fyrir sinni deild. Á. vissum tímum eru kennarafundir, par sem forstöðuniaður og forstöðukona æfingaskólans og kandídatar ræða um nauðsynjar barn- anna, kennsluna og allt, sem skólanum viðvíkur, I hverjum kennslutíma eru kennarar og kennslukonur eptir vissri reglu viðstödd við kennsluna í æfingaskól- anum, og hJusta á kandídatana, til pess svo, pegar tím- inn er búinn, að gera athugasemdir við kennsluna, ef pess parf, og Jeiðbeina hinum ungu kandídötum. Jafn- framt pví, að kandídatarnir kenna sína vissu tíma í æfingaskólanum, pá mega peir einnig, svo opt sem pví verður við komið, hlusta par á kennsluna, pó peir purfi ekki sjálfir að kenna. |>að, sem einkum er eptirtektavert við pessa æfinga- skóla, er pað, að kandídatarnir takast par á hendur fullkomna skólastjórn með ábyrgð fyrir börnum og kennslu. Starf peirra við æfingaskólann verður pví sjálfstæð skólakennnsla, en ekki lausar kennsluæfingar, eins og opt vill verða við slíka skóla, par sem ábyrgð- in liggur eingöngu á hinum fasta kennara og kennslu- konu. Með eins árs æfingu í fullkomnu skólahaldi er kandídatinn allt öðruvísi undirbúinn undir starf sitt í pjónustu alpýðuskólans, heldur en pegar hann, eptir nokkrar dreifðar kennslu-æfingar, er sendur upp í sveit, og á eigin spýtur verður að nota skóla sinn par eins og æfingaskóla; en par er sá mikli mismunur, að hið ná- kvæma, samvizkusama eptirlit, hin mörgu ráð og leið- beiningar, sem á kennaraskólanum er veitt, er með öllu ómögulegt; petta eptirlit, sem virtir og reyndir menn hafa, og er eigi pannig lagað, að pað á nokkurn hátt hindri, að hinn ungi kandídat geti frjálst og náttúrlega komið fram við kennsluna. Ef svo kandídatarnir eiga að fá vitnisburð um praktiskan dugnað sinn, verður sá